fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Valdimar Víðis kveður bæjarstjórastólinn – „Síðustu dagar hafa tekið á“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 2. júní 2026 08:49

Valdimar Víðisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar í Hafnarfirði, situr í dag sinn síðasta dag sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Hann tók við embættinu þann 1. janúar 2025, en áður gengdi hann embætti formanns bæjarráðs.

„Þetta starf hefur verið eitt það skemmtilegasta, lærdómsríkasta og mest gefandi verkefni sem ég hef tekist á við. Það hefur verið mikill heiður að fá að þjóna bænum okkar, vinna fyrir Hafnarfjörð og fá að kynnast enn betur fólkinu sem gerir þennan bæ að því sem hann er,“

segir Valdimar í kveðjupistli sínum á Facebook.

Þakkar hann Hafnfirðingum fyrir samstarfið, samtölin, ábendingarnar, hvatninguna, gagnrýnina og frábær kynni. „Bæjarstjóri á alltaf að vera nálægt fólkinu, sýnilegur, aðgengilegur og í raunverulegu samtali við íbúa. Ég er stoltur af því hversu vel mér hefur tekist að færa starfið nær fólkinu.“

Valdimar þakkar einnig frábæru samstarfsfólki sínu hjá Hafnarfjarðarbæ. „Þar vinnur öflugt fólk á hverjum degi að því að þjónusta bæjarbúa, leysa mál, byggja upp og gera gott samfélag enn betra. Það er ekki alltaf sýnilegt utan frá hversu mikil vinna, fagmennska og hjarta liggur þar að baki en ég hef séð það á hverjum degi og er þakklátur fyrir að hafa fengið að vera hluti af því liði.“

Stoltur af sínum verkum

Valdimar segir síðustu daga hafa tekið á, en þakkar jafnframt fyrir stuðninginn sem hann hefur fengið.

„Síðustu dagar hafa tekið á. Það er ekkert launungarmál. Í stjórnmálum geta vindar snúist hratt og stundum verða dagar þyngri en maður hefði óskað sér. En mitt í þessum stormi hef ég fundið fyrir miklum stuðningi. Ég hef fengið ótal skilaboð og símtöl, átt samtöl á förnum vegi og fundið mikinn hlýhug, stuðning og hvatningu. Fyrir það er ég óendanlega þakklátur. Það hefur skipt mig og mína miklu máli. Ég geng sáttur frá borði. Ég veit fyrir hvað ég stend. Heiðarleiki og heilindi hafa einkennt mín störf og munu gera áfram.

Ég er stoltur af mínum verkum sem bæjarstjóri. Stoltur af því að hafa unnið af krafti fyrir Hafnarfjörð. Stoltur af því að hafa sett manneskjuna í forgrunn. Stoltur af því að hafa lagt áherslu á samtal, virðingu, lausnir og jákvæðni.“

Valdimar snýr sér næst að flokk sínum og segir það ekki af honum tekið að Framsókn vann stórsigur í Hafnarfirði í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum.

„Við fengum sterkt umboð frá bæjarbúum og fyrir það er ég ótrúlega þakklátur. Framsókn mun áfram vinna vel, af ábyrgð og heilindum fyrir Hafnarfjörð og Hafnfirðinga. Verkefnið er alltaf stærra en einstaklingarnir. Það snýst um bæinn okkar.“

Valdimar segir að nú taki við nokkrar kærkomnar vikur í fríi. „Ég ætla að njóta tímans með fjölskyldunni minni og vinum, anda aðeins, hlaða batteríin og leyfa hausnum að lenda. Svo veit ég að handan við hornið bíða spennandi verkefni sem ég hlakka til að takast á við. Nýr kafli er að hefjast og ég tek á móti honum með bjartsýni.“

„Takk fyrir traustið. Takk fyrir samstarfið. Takk fyrir Hafnarfjörð. Ég kveð bæjarstjórastarfið með hlýju, stolti og þakklæti í hjarta. Ég óska verðandi bæjarstjóra og bæjarstjórn farsældar. Áfram Hafnarfjörður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði
Fréttir
Í gær

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“
Fréttir
Í gær

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“