fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Sex erlendar konur dæmdar fyrir skjalafals – Mættu ekki og ekki vitað hvar þær halda sig

Ritstjórn DV
Mánudaginn 1. júní 2026 18:00

Flugstöð Leifs Eiríkssonar en allar konurnar voru stöðvaðar þar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sex erlendar konur hafa verið sakfelldar í Héraðsdómi Reykjaness fyrir skjalafals með því að framvísa fölsuðu dvalarleyfi og fölsuðum vegabréfum. Engin þeirra mætti fyrir dóminn og ekki er vitað hvar nein þeirra heldur sig og því óvíst hvort þær séu staddar hér á landi.

Ekki er gefið upp í dómunum í hvaða landi konurnar eru með ríkisfang.

Miðað við nöfnin virðast fjórar þeirra hins vegar vera frá Víetnam.

Þar er um ræða í fyrsta lagi konu á sextugsaldri sem var ákærð fyrir skjalafals með því að hafa í janúar á þessu ári framvísað í Leifsstöð fölsuðu dvalarleyfisskírteini á eigin nafni. Þar sem hún mætti ekki fyrir dóminn var hún sakfelld og dæmd í 30 daga fangelsi.

Í öðru lagi var um að ræða konu á fertugsaldri sem var ákærð fyrir skjalafals með því að hafa í desember á síðasta ári framvísað fölsuðu vegabréfi, á öðru nafni en sínu eigin, í Leifsstöð. Hún mætti ekki heldur fyrir dóm og var það metið sem ígildi játningar og var hún því sakfelld og dæmd í 30 daga fangelsi.

Sama dóm hlaut kona á þrítugsaldri fyrir sama brot á sama degi, í Leifsstöð, og því mögulegt að konurnar hafi verið í samfloti.

Loks var þriðja konan dæmd fyrir þetta sama brot á þessum sama degi. Sú kona er um tvítugt. Það virðist því ekki annað um að ræða en að konurnar þrjár hafi verið í samfloti við að framvísa fölsuðum vegabréfum.

Hinar

Loks voru tvær aðrar konur dæmdar fyrir skjalafals með því að framvísa fölsuðu vegabréfum, á annarra manna nöfnum, í Leifsstöð. Örðugara er að átta sig út fá nöfnum þeirra í hvaða landi þær eru með ríkisfang.

Önnur þeirra er um sextugt og framvísaði vegabréfinu í janúar á þessu ári. Hún var dæmd eins og víetnömsku konurnar í 30 daga fangelsi.

Sjötta konan er um fertugt og framvísaði sínu falsaða vegabréfi sama dag og við sama hlið í Leifsstöð og hin konan. Hún hlaut einnig 30 daga fangelsisdóm.

Það kemur fram í öllum sex dómunum að dvalarstaðir kvennanna séu óþekktir. Miðað við að þrjár af fjórum víetnömsku konunum voru stöðvaðar með fölsuð vegabréf sama dag og að síðasttöldu konurnar tvær voru báðar stöðvaðar á sama degi þá virðist ekki loku fyrir það skotið að um mansal hafi verið að ræða en ekkert er þó minnst á slíkt í neinum af dómunum sex.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði
Fréttir
Í gær

Hvalur hf vill að leyft verði að nota hvalkjöt í dýrafóður – Segja íslenskar reglur vera „gullhúðun“

Hvalur hf vill að leyft verði að nota hvalkjöt í dýrafóður – Segja íslenskar reglur vera „gullhúðun“
Fréttir
Í gær

Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk

Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk
Fréttir
Í gær

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“
Fréttir
Í gær

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“