fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Pólskt rútufyrirtæki sakað um satanisma – Leið 666 til heljar

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 2. júní 2026 21:30

Leiðin til Heljar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rútufyrirtækið FlixBus hefur verið sakað um að breiða út satanisma. Fyrirtækið gerir út rútu til bæjarins Hel og leiðin er númer 666.

Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.

Trúarlegir hópar í Póllandi eru miður sín vegna þess að rútufyrirtækið FlixBus hefur á ný hafið áætlunarferðir til bæjarins Hel og merkt rúturnar með leiðinni 666. Er fyrirtækið sakað um að breiða út satanisma.

Hel er vinsæll ferðamannabær við Eystrasaltið, á tanga norðan við borgina Gdansk. FlixBus er með áætlunarferðir alla leið frá Kraká í suðurhluta landsins, í gegnum höfuðborgina Varsjá og til „Heljar“. Er leiðin stundum kölluð „Highway to Hel“ með vísun til hins þekkta slagar áströlsku hljómsveitarinnar AC/DC.

666, stundum kölluð tala dýrsins eða skepnunnar, er tala sem hljómsveitin Iron Maiden gerði fræga á fyrri hluta níunda áratugarins. Það vísar til dulmáls eða talnaspeki úr Opinberunarbók Biblíunnar. Í Biblíunni er talið að talan vísi frekar til Neró Rómarkeisara, sem var mjög óvinveittur kristnum, en í dag er talan aðallega tengd við djöfulinn sjálfan.

Aleksandr Kalenik, talsmaður FlixBus, viðurkennir fúslega að talan hafi verið valin af ásetningi.

„Talan 666 var vísvitandi valin út frá markaðsfræði, ætluð til að auka sýnileikinn á vinsælu ferðaleiðinni til Hel,“ segir Kalenik.

FlixBus breytti tölunni árið 2023 eftir að hafa fengið holskeflu af kvörtunum frá trúarhópum í hinu rammkaþólska Póllandi. Núna hefur hún hins vegar verið tekin í notkun á ný.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“
Fréttir
Í gær

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“