

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, vekur athygli á hvarfi Hákons Þórs Elmers í Facebookhópi Íslendinga í Búdapest. Hákon, sem er 53 ára, er bróðursonur Jóns, en hann hvarf sporlaust af flugvelli í Búdapest laugardagskvöldið 11. apríl.
„Kæru vinir. Íslendingurinn Hákon Þór Elmers hvarf sporlaust í Búdapest og hefur ekkert til hans spurst síðan 11 apríl síðastliðinn. Hákon er bróðursonur minn og höfum við fjölskylda hans skiljanlega miklar áhyggjur af honum. Rannsókn er í fullum gangi, hjá lögregluyfirvöldum og sendiráðsskrifstofum. En mér datt í hug að vekja máls á þessu hér þó ekki væri nema til að gera eitthvað í þessari óþægilegu óvissu. Ef einhver getur veitt einhverjar upplýsingar um ferðir Hákons eða eitthvað sem gæti hjálpað til við rannsóknina þá værum við aðstandendur mjög þakklát, setja inn athugasemd hér eða hafa samband við lögregluna. Einnig er hægt að senda mér tölvupóst á netfangið jon.gnarr@althingi.is og ég get komið því áfram í réttar hendur.“
Í samtali við Vísi segir Jón þá frændur ekki hafa verið í miklu sambandi undanfarið en þeir hafi verið nánir í gegnum tíðina. Segist Jón lítið vita hvað frændi hans hafi verið að gera í Búdapest.
Hann segist jafnframt ætla að skoða það í kvöld hvort honum hafi borist einhverjar upplýsingar út frá færslunni. Einnig segist hann halda í vonina um að það verði hægt að nýta nýjar upplýsingar til þess að finna Hákon.
„Óttalegur vanmáttur og já, ég birti þessa færslu á síðunni þarna en er búinn að vera alveg á haus síðan ég setti þetta inn og hef ekki náð að skoða neitt hvort einhver sé búinn að senda á okkur. En ég ætla að skoða þetta í kvöld. Það væri algjörlega frábært ef og við vonum náttúrulega að hann finnist og að fram komi einhverjar upplýsingar.“