fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Maðurinn á bak við fyrirsögnina stígur fram – „Í fjögur ár hef ég þagað“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 2. júní 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir rétt rúmum fjórum árum birti Kompás umfjöllun með fyrirsögnina: Samverustund með stjörnuspekingi breyttist í martröð. Þar var greint frá reynslu vinkonuhóps sem fór til stjörnuspekingsins Gísla Hrafns Gunnarssonar í persónulegan lestur. Lesturinn var tekinn upp og sendi stjörnuspekingurinn upptökuna í vinkonuhópinn í kjölfarið en þar sagðist Gísli meðal annars skilja Hitler og nasistana, sakaði vinkonuhópinn um að hafa skaðað börnin sín svo mikið að þau væru orðin einhverf og svo réðst hann persónulega á eina úr hópnum með svo grófum hætti að hún brast í grát.

Gísli steig nýlega fram í viðtali hjá Sölva Tryggvasyni þar sem hann lýsti því hvernig umfjöllun Kompásar hefði haft áhrif á líf hans. Meðal annars hefur hann frá umfjölluninni misst sex störf, en Gísli segist sjá eftir orðum sínum og hegðun en á sama tíma telur hann rangt að hann hafi eftir þessa umfjöllun verið flokkaður sem ofbeldismaður. Nú hefur Gísli fylgt viðtalinu við Sölva eftir með grein þar sem hann veltir fyrir sér hvort vald fjölmiðla sé of mikið á tímum internetsins sem engu gleymir. Fólk sé meira en verstu mistökin sem það gerir og að stimpla einhvern um ókomna tíð út frá hans verstu stund sé afmennskandi.

„Í fjögur ár hef ég þagað. Ekki vegna þess að ég hefði ekkert að segja heldur vegna þess að ég vissi ekki hvernig ég ætti að segja mína hlið og hugsanlegar afleiðingarnar sem gætu fylgt í kjölfarið.“

Sjá einnig: Hefur misst sex störf í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar fyrir 4 árum síðan

Enginn er bara ein fyrirsögn

Undanfarin fjögur ár hafi hann lifað með afleiðingum fréttarinnar, ekki bara vegna sinnar eigin hegðunar heldur vegna þeirrar myndar sem var dregin upp af honum í kjölfarið.

„Birtingarmynd sem mér fannst hvorki endurspegla samhengi þess sem ég hafði raunverulega að segja né þann mann sem ég hef að geyma. Kannski vonaði ég líka að með tímanum myndi þetta, að fá ekki vinnu og að vera séður sem ofbeldismaður, líða hjá. Að lífið myndi halda áfram og að árin myndu skapa nægilega fjarlægð til þess að það sem hafði gerst yrði bara hluti af fortíðinni. En sumt hverfur ekki bara vegna þess að tíminn líður. Sumt fylgir manni áfram.“

Gísli segist ekki þræta fyrir það að hafa sært vinkonuhópinn og hefur hann ráðist í mikla sjálfskoðun. Sú mynd sem var dregin upp af honum í Kompás sé þó ekki mynd sem hann vill kannast við.

„Því sá maður sem ég sá á skjánum eða var skrifað um í greinum birtum á Vísi var ekki ég. Ekki vegna þess að ég hafi verið saklaus. Ekki vegna þess að ég hafi ekki gert mistök. Ekki vegna þess að ég hafi ekki talað af mér. Heldur vegna þess að ég upplifði að ákveðin brot úr samtölum og orðum mínum hefðu smám saman orðið að heildarmynd af því hver ég væri sem manneskja. Og þegar ég horfði á þá mynd fannst mér ég ekki þekkja sjálfan mig í henni.“

Umfjöllunin hafði ekki bara áhrif á hann sjálfan heldur líka aðstandendur hans, þá einkum konu hans og börn. Gísli segist nú vilja fá tækifæri til að vera hann sjálfur. Fá að sleppa undan þessari mynd sem var dregin fram í Kompás.

„Því enginn okkar er bara versta stundin okkar. Enginn okkar er bara eitt samtal. Enginn okkar er bara ein fyrirsögn.“

Internetið gleymir engu

Taldi Gísli fyrst að tíminn myndi lækna öll sár, en þó að nýjar fréttir og ný mál hafi tekið við þá sé staðan svo að Internetið og leitarvélarnar gleyma engu.

„Og fyrirsagnirnar gleymast ekki“

Gísli veltir fyrir sér hvort samfélagið hafi áttað sig á því valdi sem fjölmiðlar hafa. Áður gátu menn gert mistök, lært af þeim, staðið upp og haldið áfram. Í dag geta fyrirsagnir fylgt fólki endalaust.

„Ég segi þetta vegna þess að ég held að við sem samfélag verðum að geta greint á milli þess að halda fólki ábyrgu og þess að afmennska það. Því þegar manneskja verður að opinberri mynd eigum við það til að hætta að sjá manneskjuna sjálfa. Við hættum að sjá að á bak við fyrirsögnina er raunverulegt líf. Raunveruleg fjölskylda. Raunveruleg framtíð. Og raunveruleg manneskja sem þarf síðan að vakna morguninn eftir og halda áfram að lifa. Og kannski er það einmitt ástæðan fyrir því að ég ákvað loksins að stíga fram núna.

Ekki vegna þess að ég vilji halda áfram að berjast við fortíðina eða festast í því sem gerðist heldur vegna þess að ég vil ekki lengur þurfa að lifa inni í sögu sem aðrir skrifuðu um mig. Ég vil fá tækifæri til að stíga út úr henni og halda áfram sem ég sjálfur. Ég veit að ég er ekki fullkominn maður og ég veit að ég hef gert mistök. En ég veit líka hver ég er. Og eftir fjögur ár af þögn fann ég að það væri kominn tími til að leyfa minni eigin rödd að vera til. Að segja mína hlið með mínum eigin orðum. Að fá að vera meira en myndin sem varð til. Að geta loksins haldið áfram lífinu sem ég sjálfur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni
Fréttir
Í gær

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“
Fréttir
Í gær

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“