fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 2. júní 2026 14:04

Nýr meirihluti í borgarstjórn var kynntur í Viðey þann 27. maí. Mynd: Reykjavíkurborg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný borgarstjórn tók til starfa í dag. Hildur Björnsdóttir er formlega orðin borgarstjóri en Heiða Björg Hilmisdóttir afhenti henni lyklana klukkan hálf tvö. Á meðan var gert hlé á fyrsta borgarstjórnarfundi nýs meirihluta sem hófst klukkan tólf á hádegi.

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, er forseti borgarstjórnar og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, er formaður borgarráðs.

Á dagskrá fundarins eru 32 mál. Þar eru meðal annars kosningar í nefndir og ráð, endurskoðun samgöngusáttmálans, samstarf við atvinnulífið um leikskólarekstur og daggæslu, lengri opnunartími sundlauga, og breytingar á fánareglum við stjórnsýsluhús borgarinnar á dagskrá.

Í hádeginu opnaði svo vefsíðan verkefnalisti.is þar sem stefnumál meirihlutans eru útfærð og tímasett. Geta borgarbúar fylgst með framvindu verkefna sem sett eru fram í meirihlutasáttmála flokkanna.

Verkefnin skiptast í átta flokka: æskuárin (41), samgöngur (30), húsnæði (19), atvinnulíf og menning (20), hreyfing og útivist (23), efri árin (16), velferð (11), og rekstur og umhirða (30). Undirflokkar eru mismargir frá 11 í 41 verkefni, sjá má fjölda undirverkefna hvers flokks í sviga hér fyrir framan.

Meðal verkefna eru til dæmis að semja við einkaaðila um uppbyggingu hagkvæms húsnæðis fyrir leikskóla og dagheimili, endurskoðun á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut, afnám reglna um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar, lækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði, aukið aðgengi almennings að íþrótta- og skólahúsnæði borgarinnar, átak í tæknifærni eldra fólks, aukið öryggi íbúa með öflugra samstarfi við lögreglu, nýting gervigreindar og útvistun verkefna í auknum mæli við stafræna þróun borgarinnar, og þrýsting lagabreytingar svo fækka megi borgarfulltrúum úr 23 í 15.

Öll verkefni hafa tímaramma, ýmist 100 daga, 12 mánuði eða 4 ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“
Fréttir
Í gær

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“