fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 1. júní 2026 21:44

Ólöf Breiðfjörð, Ómar Guðmundsson, Ruth Einarsdóttir, Almar Guðmundsson, Guðlaugur Eyjólfsson og Lára Rut Þorsteinsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alls söfnuðust 3.205.201 krónur á Jazzþorpinu í Garðabæ sem fram fór helgina 30. apríl – 3. maí. Það eru Alzheimersamtökin sem njóta góðs af sölunni og fá til sín óskert sölu á húsgögnum og gripum frá Góða hirðinum en einnig lögðu Húsgagnahöllin, Tekk og Ikea verkefninu lið. 

Jazzþorpið í Garðabæ er árleg hátíð sem fer fram á Garðatorgi og Garðabær stendur fyrir. Í Jazzþorpinu var boðið upp á 25 viðburði; tónleika, spjall og smiðju fyrir börn. Þá var boðið upp á veitingar, Ásgarður handverkstæði seldi vörur sínar og matarmarkaður kryddaði enn frekar tilveruna í þorpinu. Marglitar kúlur og kósístofur gera Jazzþorpið að sannkölluðum ævintýraheimi sem ætlaður er allri fjölskyldunni og aldrei hafa jafn margir dvalið í þorpinu líkt og í ár.

Ómar Guðjónsson listrænn stjórnandi Jazzþorpsins, Ruth Einarsdóttir rekstrarstóri Góða hirðisins og Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar afhentu Alzheimersamtökunum styrkinn en það var Guðlaugur Eyjólfsson framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna sem veitti honum viðtöku. Á myndinni með þeim má sjá Ólöfu Breiðfjörð menningarfulltrúa Garðabæjar og Láru Rut Þorsteinsdóttur markaðsfulltrúa Góða hirðisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“

Jón Viðar vill ekki raska grafarrónni á Þingvöllum: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði

Geymdi yfir 30 milljónir í peningaskáp í Hveragerði
Fréttir
Í gær

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“
Fréttir
Í gær

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“