fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Segir þetta vera að sliga að margar fjölskyldur – „Verða síðdegisstundirnar að kapphlaupi við klukkuna“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 2. júní 2026 13:30

Kolbrún Baldursdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins, segir að nýta þurfi skóla betur sem miðju í lífi barna. Skólabyggingar séu margar vannýttar og með því að bjóða í auknum mæli upp á listir, félagsstarf og aðrar tómstundir í skólahúsnæði eftir að kennslu lýkur mætti einfalda daginn til muna. 

„Börn þyrftu síður að ferðast á milli staða; leiðbeinendur, þjálfarar og kennarar gætu komið til þeirra og haldið starfinu áfram innan sama umhverfis. Í nútímasamfélagi eru dagar margra fjölskyldna orðnir afar annasamir. Foreldrar þurfa að samræma vinnu, skóla barna sinna, heimilishald og tómstundir barna á sama tíma og umferð, fjarlægðir og tímaskortur setja svip á daglegt líf. Fyrir marga verða síðdegisstundirnar að kapphlaupi við klukkuna þar sem skutl á milli skóla, æfinga og tómstunda tekur bæði tíma og orku. Þetta getur reynst sérstaklega erfitt fyrir foreldra sem hafa ekki bíl, stuðningsnet eða sveigjanlegan vinnutíma.“

Kolbrún segir í grein sinni á Vísi margar skólahljómsveitir hafa þegar sýnt að slík samfella getur virkað vel, þar sem tónlistarnám og skólastarf tengjast með góðum árangri. Fleira jákvætt fáist einnig með þessu fyrirkomulagi því með færri bílferðum mætti líka draga úr umferð og losun og gefa fjölskyldum meiri tíma saman.

Kolbrún bendir á að stýrihópur, sem hún fer fyrir, á vegum barna- og menntamálaráðherra vinnur nú að stefnu og aðgerðum sem eiga að tryggja börnum jöfn tækifæri og rjúfa vítahring fátæktar. Stefnt er að því að kynna drög að aðgerðum í samráðsgátt um mitt sumar. Kolbrún segir hópinn hafa átt víðtækt samráð við fjölskyldur, sveitarfélög, skólasamfélagið, félagasamtök og aðra hagaðila. Í því samtali hefur hugmyndin um aukna samþættingu skóla og frístundastarfs; að skóli og frístund verði undir sama þaki æ oftar komið til tals.

„Samþætting sem þessi gæti dregið verulega úr álagi á fjölskyldur. Foreldrar þyrftu ekki að hlaupa úr vinnu til að keyra börn milli staða eða setja saman flókna áætlun um skutl milli staða. Börnin nytu meiri stöðugleika, dagurinn yrði samfelldari og minni tími færi í bið, akstur og óvissu. Aukin samfella milli skóla og frístunda gæti jafnframt styrkt félagsleg tengsl, öryggi og vellíðan barna.“

Liður í að auka jöfnuð

Kolbrún segir málið einnig snúast um jafnrétti, þar sem í dag ráði aðstæður foreldra oft miklu um hvort börn komast í tómstundir.

„Samfella skóla og frístundastarfs gæti reynst tekjulágum barnafjölskyldum sérstaklega vel. það myndi draga úr kostnaði, skutli og skipulagsálagi. Ef fjölbreytt starf færi fram innan skólans yrðu tækifærin aðgengilegri, óháð efnahag, búsetu eða samgöngumöguleikum.

Þetta getur skipt sköpum fyrir börn sem annars missa af mikilvægu félagslegu og uppbyggilegu starfi. Áskoranirnar eru vissulega til staðar en ávinningurinn getur verið mikill. Skóli og frístund undir sama þaki er ekki aðeins skipulagsmál. Það er leið til að byggja barnvænna samfélag og jafna tækifæri barna.“

Kolbrún fjallaði einnig um málið á Alþingi í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“
Fréttir
Í gær

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“