fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Fréttir

Segir umræðuna um ESB og auðlindir Íslands sérstaka

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 2. júní 2026 16:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Einarsdóttir prófessor og sérfræðingur í Evrópurétti segir þá umræðu sem eigi sér stað um auðlindir Íslands og Evrópusambandið óneitanlega sérstaka. Það eigi bæði við um það sem heyrist frá ráðherrum og stjórnarþingmönnum og þingmönnum stjórnarandstöðunnar. Bæði stjórn og stjórnarandstaða haldi því á lofti að samþykki þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslunni í sumarlok að taka upp á ný viðræður um aðild að Evrópusambandinu að þá verði í slíkum viðræðum að tryggja yfirráð Íslendinga yfir sínum náttúruauðlindum. Það sé hins vegar alveg ljóst að hvert og eitt aðildarríki sambandsins eigi sínar náttúruauðlindir þótt málið sé reyndar flóknara þegar kemur að fiskveiðiauðlindum.

Margrét ræðir þetta í viðtali við Meginlandið hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar:

„Mér hefur einmitt fundist aðeins sérstakt í umræðunni í rauninni bæði hjá stjórnvöldum og stjórnarandstæðingum að þeir hafa verið að tala um að við þyrftum að tryggja yfirráð yfir auðlindum okkar í aðildarviðræðum. En það er nú bara þannig að aðildarríki ESB þau eiga sjálf vatns-. og orkuauðlindir sínar.“

Hún segir að löggjöf ESB fjalli ekkert um eignarhald á slíkum auðlindum eða nýtingu auðlindanna. Þegar kemur að fiskveiðiauðlindum sé málið hins vegar flóknara.

Margrét segir að Evrópusambandið setji ýmis konar löggjöf varðandi undirbúning fyrir nýtingu vatns- og orkuauðlinda t.d. með lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Einnig hafi verið komið á lögum um innri markað með raforku, orkunýtni og orkuöryggi:

„En það að auðlindin færist á einhvern hátt í eigu ESB það er bara ekki rétt.“

Margrét ræðir þetta og fleira sem snertir hugsanlegt áframhald aðildarviðræðna Íslands við ESB við Helgu Völu Helgadóttur sem hefur umsjón með þættinum sem nálgast má í heild sinni hér fyrir neðan.

Fréttin hefur verið uppfærð

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Einar rýnir í veðrið í júlí: Landsmenn gætu átt von á góðu

Einar rýnir í veðrið í júlí: Landsmenn gætu átt von á góðu
Fréttir
Í gær

Mynd úr íslenskum söluturni árið 1998 kveikir fjörugar umræður um verðlag í dag

Mynd úr íslenskum söluturni árið 1998 kveikir fjörugar umræður um verðlag í dag
Fréttir
Í gær

„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“

„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“
Fréttir
Í gær

Krefjast þess að fá að hafa sjö íbúðir í einbýlishúsi

Krefjast þess að fá að hafa sjö íbúðir í einbýlishúsi
Fréttir
Í gær

Egill fullur kvíða í verslunum

Egill fullur kvíða í verslunum
Fréttir
Í gær

Íslenskir bræður finna varla fyrir sársauka – Beit af tungunni án þess að finna fyrir því

Íslenskir bræður finna varla fyrir sársauka – Beit af tungunni án þess að finna fyrir því
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gengu inn á lögreglustöðina við Hverfisgötu og sögðust hafa verið stungnir

Gengu inn á lögreglustöðina við Hverfisgötu og sögðust hafa verið stungnir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ákærður fyrir að slá eiginkonu sína utan undir

Ákærður fyrir að slá eiginkonu sína utan undir