

Gagnrýndandinn Jón Viðar Jónsson er ekki sáttur við áform kvikmyndagerðar- og fræðafólks um að grafa upp líkamsleifar skáldsins Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum. Líkt og fjallað hefur verið um í morgun vill hópurinn grafa upp beinin til að komast að því hvort það sé í raun og veru Jónas sem hvílir á Þingvöllum. Í hópnum eru Elín Hirst, fjölmiðlakona og Páll Valsson sem á sínum tíma skrifaði ævisögu Jónasar Hallgrímssonar. Þar eru einnig Kári Stefánsson læknir, Kristján Valur Ingólfsson fyrrverandi vígslubiskup, Agnar Helgason líffræðilegur mannfræðingur og Lárus Jónsson og Halldór Hilmisson kvikmyndaframleiðendur hjá Republik.
Sjá frétt: Setja spurningarmerki við uppgröft á líkamsleifum Jónasar
Jón Viðar spyr einfaldlega: „Hvað gengur að þessu fólki?!!“
Segir hann á Facebook: „Margt hefur maður nú séð en sjaldan jafn lágkúrulega og smekklausa tilraun til að auglýsa bíóprósjekt og þetta! Og ég sem hélt (eins og eflaust langflestir) að HKL hefði afgreitt þennan farsa endanlega með satírunni í Atómstöðinni. Neinei, nú skal aftur vekja upp drauginn!! Eins og öllum sé ekki slétt sama – og það skipti nokkurn mann minnsta máli – hvort það voru leifarnar af dönskum slátrara eða einhverjar tætlur af dauðlegu holdi Jónasar heitins sem komu upp í efjunni úr Hjástoðarkirkjugarði þegar nokkrir íslenskir rugludallar stóðu fyrir einhverslags uppgreftri þar fyrir um áttatíu árum! Þetta athæfi var öllum til skammar og athlægis sem komu að því og sama gildir um það fólk sem leyfir sér nú að ganga fram með þessum hætti – í sem sagt þeim tilgangi einum að auglýsa einhverja bíómynd sem það segist ætla að gera.“
Hann vill ekki að Jónasi sé minnst með þessum hætti:
„Nei, gott fólk, við ræktum og virðum minningu okkar mikla og elskaða skálds með því að halda ljóðum hans lifandi – og jafnvel ekki úr vegi að kenna eitthvað af þeim í skólum landsins – séu þau farin sömu leið og Njála sem maður verður víst að gera ráð fyrir. Og röskum ekki frekar grafarró þeirra sem hvíla í „þjóðargrafreitnum“ við Þingvallabæinn – hverjir svo sem það eru.“