

Lögmaður sem hefur verið kærður fyrir að draga sér fé úr dánarbúi var lögráðamaður að minnsta kosti tveggja skjólstæðinga Reykjavíkurborgar.
Heimildin og RÚV greina frá og segja að lögmaðurinn heiti Guðrún Björg Birgisdóttir.
Hún hefur verið kærð fyrir að draga sér alls um 12,5 milljónir úr dánarbúi konu, sem henni var falið að hafa umsjón með. Er Guðrún raunar sökuð um að hafa tæmt dánarbúið.
Er hún í kærunni sögð hafa lagt féð inn á vörslureikning lögmannstofu sinnar, Logia.
Það eru börn hinnar látnu sem lögðu kæruna fram. Lögmannsstofan hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta en skiptastjóri segist hafa sent Héraðssaksóknara ábendingu um hugsanleg brot Guðrúnar í tengslum við rekstur lögmannstofunnar. Lögmannsréttindi hennar eru ekki lengur virk.
Fram kemur í frétt RÚV að raunar hafi Guðrún verið skipaður fjárhaldsmaður konunnar nokkrum mánuðum áður en hún dó þar sem konan hafi verið svipt fjárræði en þar sem samskipti barna konunnar við Guðrúnu gengu vel fólu þau henni að hafa umsjón með dánarbúinu.
Reykjavíkurborg staðfestir að Guðrún hafi verið lögráðamaður minnst tveggja einstaklinga sem búa í sértæku húsnæði á vegum borgarinnar. Velferðarsvið borgarinnar segist hafa óskað eftir upplýsingum frá sýslumanni hvort Guðrún hafi farið með fjármál fleiri skjólstæðinga borgarinnar en ekki fengið þær upplýsingar.