fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Þórður Snær segir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks hafa brætt úr sér af reiði yfir verðlækkun á eldsneyti

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 13:30

Þórður Snær skýtur fast á Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingar, segir að þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks hafi brætt úr sér af reiði eftir að ríkisstjórnin kynnti verðlækkun á olíu í sumar til að bregaðst við hækkunum á heimsmarkaðsverði.

Þórður Snær reifar nýjar aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem standa yfir í fjóra mánuði í aðsendri grein á Vísi í dag. Það er að virðisaukaskattur á eldsneyti á dælu verði lækkaður úr 24 í 11 prósent og eftirlit með verðlagi hert til að lækkunin skili sér til neytenda.

„Viðbrögð stjórnarandstöðunnar fólu ekki í sér að fagna því að stjórnvöld væru að grípa inn í alvarlegar aðstæður til að verja hag fólksins í landinu. Þvert á móti bræddu þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem nýlega lagði fram efnahagstillögur um að setja ríkissjóð á hausinn á örfáum árum, og Miðflokksins nánast úr sér af vanþóknun yfir þessari aðgerð,“ segir Þórður Snær og vísar í tillögur Sjálfstæðismanna um að lækka lækka opinberar á lögur um 140 milljarða króna, einkum á þá eignamestu.

Komi ekki á óvart

„Það versta sem þeim dettur í hug að geti gerst er að ríkið tryggi að aðgerðir sem eiga að vinna gegn verðbólgu og létta tekjulægstu hópunum sem verða mest fyrir barðinu á henni lífið fái sannarlega þann ávinning, en að seljendur vörunnar geti ekki undir neinum kringumstæðum stungið honum í vasann,“ segir Þórður.

Sjá einnig:

Ríkisstjórnin lækkar virðisaukaskatt á eldsneyti á dælu – Styrkir verðlagseftirlitið

Hann segir að það þurfi þó ekkert að koma á óvart að stjórnarandstöðuflokkarnir tali harkalega gegn þingmáli sem lækka á verð á eldsneyti. Pólitísku línur þeirra sé skýrt.

„Opinbert eftirlit er að þeirra mati vont og fyrirtæki eiga helst að fá að hafa eftirlit með sjálfum sér. Skiptir engu þótt um sé að ræða fyrirtæki sem starfa á mörkuðum þar sem fákeppni eða einokun ríkir þar sem margoft hefur sýnt sig að lækkun á álögum skilar sér ekki í betri kjörum til almennings heldur aukinni arðsemi,“ segir hann. „Sama gildir um afstöðu þess til skatta, sem standa undir velferðarkerfi og þjónustu hins opinbera. Slíkir eru það versta sem þessi hópur veit um, sérstaklega ef þeir leggjast á breiðustu bökin.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi
Fréttir
Í gær

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision