fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Ríkisstjórnin lækkar virðisaukaskatt á eldsneyti á dælu – Styrkir verðlagseftirlitið

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 10. apríl 2026 12:57

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland kynntu aðgerðirnar á blaðamannafundi í hádeginu. DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Virðisaukaskattur á eldsneyti á dælu verður tímabundið lækkaður úr 24 í 11 prósent. Þetta er á meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi flokkformanna ríkisstjórnaflokkanna nú í hádeginu.

Aðgerðirnar eru hugsaðar til þess að hemja verðbólgu og bregðast við alheimsverðhækkunum á olíu vegna stríðsins í Íran. Takmarkið er að draga úr áhrifum á íslensk heimili og fyrirtæki og „fletja út kúfinn.“

Aðgerðirnar eru eftirfarandi:

  1. Lækkun á dælu
  • Með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts úr 24% í 11% á eldsneyti af dælu
  1. Vöktun á verðlagningu
  • Með tímabundnu lagaákvæði sem skyldar söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og felur Samkeppniseftirlitinu að vakta að þetta sé gert
  • Með því að styrkja verðlagseftirlit ASÍ um 15 milljónir til að hafa sérstakt eftirlit í sumar með verðlagningu á öllum helstu tegundum dagvöru og þjónustu
  1. Fjölgun hleðslustöðva um land allt
  • Með 500 milljóna átaki strax í sumar til að fjölga hleðslustöðvum við fjölbýlishús og gististaði og „loka hleðslugatinu“ hringinn í kringum landið

Aðgerðirnar taka gildi 1. maí og gilda þar til 31. ágúst næstkomandi. Lagafrumvarp þar að lútandi verður lagt fram í næstu viku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ákærður fyrir nauðgun eftir að samræði hófst með vilja

Ákærður fyrir nauðgun eftir að samræði hófst með vilja
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði
Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti í Grímsnesinu: Segir Fjólu tala niður til fólks – „Talað um fólk eins og mig eins og við séum ekki „alvöru“ íbúar“

Allt á suðupunkti í Grímsnesinu: Segir Fjólu tala niður til fólks – „Talað um fólk eins og mig eins og við séum ekki „alvöru“ íbúar“
Fréttir
Í gær

Fluttu í draumasamfélagið árið 2007 en nú er staðan önnur – „Eftir standa lögreglustöð og kjörbúð“

Fluttu í draumasamfélagið árið 2007 en nú er staðan önnur – „Eftir standa lögreglustöð og kjörbúð“
Fréttir
Í gær

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum
Fréttir
Í gær

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Arkitekt hjá borginni segist nokkrum sinnum hafa verið milli steins og sleggju: „Erfitt fyrir mig að segja „Já en þetta eru ekki góðar íbúðir“

Arkitekt hjá borginni segist nokkrum sinnum hafa verið milli steins og sleggju: „Erfitt fyrir mig að segja „Já en þetta eru ekki góðar íbúðir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts