fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Þórir vill leiðrétta ranghugmyndir um einkabílinn – Ríkið í bullandi plús

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 15:30

Þórir Garðarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórir Garðarsson, stjórnarmaður í Félagi sjálfstæðismanna í Grafarvogi, segir þeirri ranghugmynd haldið á lofti að hið opinbera niðurgreiði bílaumferð og nauðsynlegt sé að draga úr umferð einkabíla. Veruleikinn sé hins vegar sá að ríkið hafi tvöfalt meiri tekjur af bílum en sem nemur útgjöldum til vegamála.

Þetta kemur fram í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Þórir gerir svofellda grein fyrir þessu:

„Beint framlag ríkissjóðs til vegakerfisins í fjárlögum þessa árs nemur um 55 milljörðum króna. Þar af fara rúmir 34 milljarðar í framkvæmdir á vegakerfinu og um 11 milljarðar í rekstur og þjónustu. Þetta er sá kostnaður sem fer með beinum hætti í uppbyggingu og viðhald vega.

Á móti koma hins vegar verulegar tekjur ríkisins af akstri og bifreiðum. Umhverfis- og eldsneytistengdir skattar, þar með talið kílómetragjald, kolefnisgjöld og virðisaukaskattur af eldsneyti, nema samanlagt umtalsverðum fjárhæðum, áætlað um eða yfir 100 milljörðum króna. Við bætast svo vörugjöld af innflutningi og sölu bifreiða, sem má áætla á bilinu 10-15 milljarða króna á árinu plús vsk.

Heildartekjur ríkissjóðs af bifreiðatengdri starfsemi eru því að jafnaði a.m.k. tvöfalt hærri en kostnaður við vegakerfið. Einkabílar eru um 86% allra ökutækja í umferð og standa því undir stærstum hluta þessara tekna.“

Þórir segir rangt að bílaumferð sé niðurgreidd, öðru nær sé hún mikilvægur tekjustofn fyrir ríkissjóð. Hann bendir einnig á að slit á vegakerfinu stafi að miklu leyti af umferð þungra atvinnubíla sem valdi miklu meira álagi á vegi en fjölskyldubíllinn.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

„Færð bara yfir þig dembuna“

„Færð bara yfir þig dembuna“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn
Fréttir
Í gær

Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með 15 ára stúlku um borð í skip

Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með 15 ára stúlku um borð í skip
Fréttir
Í gær

Unglingur sakaður um að hrækja framan í lögreglumann á Hornafirði

Unglingur sakaður um að hrækja framan í lögreglumann á Hornafirði
Fréttir
Í gær

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss
Fréttir
Í gær

Munu Íranar ráðast beint á Bandaríkin? Vaxandi ótti um hefndaraðgerðir

Munu Íranar ráðast beint á Bandaríkin? Vaxandi ótti um hefndaraðgerðir
Fréttir
Í gær

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”

Hildur segir útskýringar Kjartans og Mörtu fyrirslátt: „Einhverjir ákváðu að bregðast öðru vísi við og það er leitt”
Fréttir
Í gær

Meðalbiðtíminn eftir heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu 27 dagar – Fer upp í allt að 115 daga

Meðalbiðtíminn eftir heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu 27 dagar – Fer upp í allt að 115 daga