fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Sakar Eddu um lygar og ofbeldi gegn Ingó bróður sínum – „Fínt ef að hún myndi biðjast afsökunar á sínu ofbeldi“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 12. apríl 2023 16:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Þórarinsson fótboltamaður tjáir sig um yfirlýsingu Eddu Falak, sem hún birti í dag og miðlar greindu frá og segir Guðmundur að um sé að ræða enn eina gaslýsinguna frá Eddu.

Sjá einnig: Þjóðþekkt fólk flykkist á bak við Eddu – „Hinir hræddu hata“

„Skulum ekki gleyma sannleikanum. Þegar hún sat í viðtölum og laug (missögn) upp á hóp karlmanna kynferðislegri áreitni til þess að koma sér og sínum áróðri á framfæri,“ segir Guðmundur. Bróðir hans er Ingólfur Þórarinsson, Ingó veðurguð, en sumarið 2021 birti Edda færslu á Twitter þar sem hún sagði þjóðþekktan tónlistarmann hafa nauðgað sér þegar hún var 17 ára. Ingólfur var ekki nefndur á nafn í tvítinu, en Edda kærði hann síðar. Í júlí sama ár fékk hún síðan ásamt fjórum öðrum einstaklingum kröfubréf frá lögmanni hans, þar sem þau voru krafin um skaðabætur og opinbera afsökunarbeiðni vegna ummæla um Ingólf.

Segir Guðmundur að Edda reyni með pistli sínum enn eina ferðina að setja karla og konur í sitthvort liðið. „Sem að mér finnst alltaf jafn sorglegt. Bæði kyn beita ofbeldi og það er hræðilegt. Bæði kyn eiga líka frábæra fulltrúa sem gera flotta hluti með sitt líf og því ber að fagna,“  segir Guðmundur. 

„Hún talar stöðugt um að hún hafi verið að gefa konum rödd. Þær fengu þá rödd í hlaðvarpsþætti fyrir framan alþjóð á meðan hún fékk borgað fyrir þá baráttu. Núna kvartar hún yfir áreiti. Hún hélt semsagt að það yrði ekkert áreiti tengt því að ljúga í viðtölum og byrja með þetta hlaðvarp.“ 

Guðmundur segir Eddu tala um að baráttan sé persónugerð en, „við hverju býst hún þegar hún beitir sjálf ofbeldi og lygum aftur og aftur til að afla sér tekna en notar svo málstaðinn til að réttlæta allt. (Vonandi sendir hún ekki Gunnar Nelson á mig). Svona svipað og með Hildi Lilliendahl hérna um árið.“ 

Segist Guðmundur hafa heyrt hræðilegar sögur af því hvernig Edda hafi komið fram við sína fyrrverandi kærasta. „Ég má sennilega ekki trúa því. Ég heyri slæmar sögur af því hvernig hún hefur komið fram við fólk sem hún hefur unnið með, ég má sennilega ekki trúa því heldur,“ segir Guðmundur og rifjar upp kynni hennar og bróður síns.

„Ég heyrði bara hvernig hún montaði sig af því við kunningja sína á sínum tíma að hafa verið að hitta bróðir minn. Sem hún svo 13 árum seinna sakar um nauðgun á Twitter. Í hlaðvarpi sínu hafði hún setið með fórnarlambi nauðgunar og sagðist þar ekki getað hugsað sér að upplifa nauðgun. Það var svo fljótlega klippt út eftir hennar ásakanir. 

Ég væri nú sennilega bara einhver að hrista hausinn yfir þessu út í bæ ef ég vissi ekki hversu hræðilegu ofbeldi og lygasögum bróðir minn hefur orðið fyrir á netinu og í fjölmiðlum,“ segir Guðmundur.

„Áfram konur. Áfram karlar. Áfram allir.  Þar með talin Edda Falak. En það var væri kannski fínt ef að hún myndi biðjast afsökunar á sínu ofbeldi og því sem hún hefur logið og tæki sér ótímabundið frí líka fyrir sín mistök.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon