fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Strákum líkar klámáhorf betur en stelpum samkvæmt nýrri skýrslu

Ritstjórn DV
Mánudaginn 4. apríl 2022 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt nýrri skýrslu Menntavísindastofnunar um börn og netmiðla hafa tæplega þrír af hverjum tíu nemendum í 8. bekk horft á klám á netinu, hlutfallið hækkar síðan með árunum og hefur rúmlega helmingur nemenda í 10. bekk horft á klám og sjö af hverjum tíu nemendum í framhaldsskóla.

Skýrslan byggist á könnun sem Fjölmiðlanefnd fékk Menntavísindastofnun Háskóla Íslands til að framkvæma meðal grunn- og framhaldskólanema á aldrinum 9-18 ára vorið 2021 og hafa niðurstöðurnar verið kynntar í nokkrum hlutum. Sá hluti sem hér er til umfjöllunar fjallar um klám.

Helstu niðurstöðurnar eru þær að á bilinu tvisvar til þrisvar sinnum fleiri strákar en stelpur í grunnskóla hafa horft á klám, en munurinn á milli kynjanna verður minni í framhaldsskóla.

Meirihluti ungmenna leita sjálf af klámefni á netinu. Stelpur leita síður að klámefni en strákar, og eru strákar heldur líklegri til að sjá klámauglýsingar á netinu og líkar klámáhorfið betur en stelpum. Reyndar greindu flest ungmennin fra því að líka við klámáhorfið. Fjórðungi nemenda í 8-10. bekk var alveg sama, og um einn af hverjum tíu nemendum á báðum skólastigum þótti klámið spennandi. Fáir sögðu klámið vera ógeðslegt, en þar má til dæmis nefna að engum strák í framhaldsskóla fannst klámið ógeðslegt.

Þátttakendur voru spurðir hvort og þá hvar þeir hefðu séð klámauglýsingar á netinu. Sögðust þar flestir hafa séð slíkar auglýsingar á Google.

 

 

Skýrsluna í heild sinni má finna hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon