Sky News skýrir frá þessu. Biden sagði ríkjum landsins að tryggja að allir kennarar og starfsmenn skóla fái að minnsta kosti einn skammt af bóluefni fyrir marslok. Hann tilkynnti einnig að lyfjaframleiðandinn Merck & Co muni aðstoða keppinauta sína hjá Johnson & Johnson við framleiðslu bóluefnis síðarnefnda fyrirtækisins en það fékk nýlega neyðarmarkaðsleyfi í Bandaríkjunum. Biden sagði að samstarfið væri í anda þeirrar samvinnu sem átti sér stað í samfélaginu á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar.
„Við erum nú á góðri leið með að eiga nóg bóluefni fyrir alla fullorðna Bandaríkjamenn fyrir lok maí,“ sagði hann. Hann sagðist vonast til að eftir eitt ár verði ástandið orðið eðlilegt og bætti við að kannski gerist það fyrr.
Áður hafði verið stefnt að því að eiga nóg bóluefni fyrir alla fullorðna fyrir lok júlí svo um umtalsverðan árangur er að ræða.
Johnson & Johnson hefur glímt við „óvænt vandamál“ í framleiðslu á bóluefninu en fyrirtækið sendi fjórar milljónir skammta frá sér á mánudaginn og stefnir að því að afhenda 16 milljónir skammta til viðbótar í mánuðinum.
Sérfræðingar telja að bóluefnið frá fyrirtækinu geti gjörbreytt baráttunni við kórónuveiruna því það þarf aðeins einn skammt af því og það er hægt að geyma það í venjulegum ísskápum. Fyrirtækið hefur heitið því að afhenda 100 milljónir skammta fyrir lok júní.