fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Átök innan herbúða Real Madrid – Rudiger lét hnefana tala inni í klefa

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óróinn innan Real Madrid virðist halda áfram eftir að upplýst var hver varð fyrir barðinu á Antonio Rüdiger í átökum á æfingu á dögunum.

Samkvæmt spænskum miðlum var það Álvaro Carreras sem lenti í samstuði við þýska varnarmanninn, en Rüdiger á að hafa „misst stjórn á sér“ og slegið liðsfélaga sinn eftir 1-1 jafntefli gegn Real Betis fyrir tveimur vikum.

Atvikið á að hafa átt sér stað á æfingasvæðinu og þurfti að skilja leikmennina að. Í kjölfarið hafa einnig vaknað spurningar um framlag Carreras hjá liðinu.

Carreras, sem er 23 ára gamall og hefur áður verið á mála hjá Manchester United og Benfica, sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann reyndi að slá á málið.

„Undanfarið hafa komið fram fullyrðingar sem endurspegla ekki raunveruleikann. Skuldbinding mín við félagið hefur verið algjör frá fyrsta degi,“ sagði hann og bætti við að atvikið hefði verið „einangrað og þegar leyst“.

Samkvæmt The Athletic bað Rüdiger liðsfélaga sína afsökunar og bauð leikmönnum og fjölskyldum þeirra út að borða til að bæta fyrir hegðun sína.

Þetta er enn eitt vandamálið á erfiðu tímabili Real Madrid, þar sem einnig hefur Kylian Mbappé verið gagnrýndur og sagður hafa lent í rifrildi við starfsmann þjálfarateymisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Conte vill segja upp störfum

Conte vill segja upp störfum
433Sport
Í gær

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar
433Sport
Í gær

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi