fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Saka Arsenal um skítlega framkomu og skoða formlega kvörtun – Sjáðu hvað gerðist

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atlético Madrid hefur látið í ljós mikla óánægju með bæði leikmenn Arsenal og dómgæslu eftir að spænska liðið féll úr leik í Meistaradeildinni í vikunni.

Lið Diego Simeone tapaði 1-0 í síðari leik liðanna í London og datt þar með út úr keppninni. Stemningin var afar heit undir lok leiksins og átti Simeone í orðaskiptum við íþróttastjóra Arsenal, Andrea Berta, þar sem hann ýtti við honum.

Þrátt fyrir það var Simeone hófstilltur í viðtölum eftir leik og sagðist ekki vilja leita afsakana. Samkvæmt spænska miðlinum AS er þó önnur saga á bak við tjöldin, þar sem félagið telur sig hafa verið beitt rangindum frá upphafi ferðarinnar til Englands.

Stuðningsmenn Arsenal hófu leikinn utan vallar með því að skjóta upp flugeldum fyrir utan hótel Atlético um nóttina, sem talið er hafa truflað undirbúning liðsins. Þá voru einnig efasemdir um val á dómurum, en Daniel Siebert dæmdi leikinn og Bastian Dankert sá um VAR.

Atlético telur einnig að Arsenal hafi beitt „óheiðarlegum aðferðum“ í aðdraganda leiksins og gagnrýndi hegðun leikmanna í uppbótartíma, þar sem Gabriel Martinelli var sakaður um að tefja leik.

Spænska liðið er sérstaklega ósátt við þrjú atvik inni í teig sem ekki voru dæmd víti, þar á meðal þegar Riccardo Calafiori átti að hafa brotið á Giuliano Simeone.

Atlético íhugar nú að leggja fram formlega kvörtun til UEFA vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Conte vill segja upp störfum

Conte vill segja upp störfum
433Sport
Í gær

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar
433Sport
Í gær

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi