fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Pressan

Fauci varar við mikilli aukningu kórónuveirusmita eftir jólin

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 8. desember 2020 06:58

Anthony Fauci. Mynd:EPA-EFE/Al Drago / POOL

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anthony Fauci, helsti smitsjúkdómasérfræðingur Bandaríkjanna, varar við mikilli aukningu kórónuveirusmita, nýrri bylgju, eftir jól. Smitum hefur fjölgað mikið í kjölfar þakkargjörðarhátíðarinnar og óttast Fauci að það sama gerist í kjölfar jólanna.

BBC skýrir frá þessu. Fram kemur að smitum hafi fjölgað mikið í kjölfar þakkargjörðarhátíðarinnar og að hún setji mark sitt á smittölurnar þessa dagana. En eftir því sem Fauci segir þá geta jólin og áramótin orðið enn stærri áskorun.

Síðustu daga hafa um 200.000 smit greinst á dag og metfjöldi COVID-19 smitaðra liggur á sjúkrahúsum landsins. Fauci, sem verður áfram ráðgjafi um heimsfaraldurinn í nýrri stjórn Joe Biden, segist hafa sömu áhyggjur af jólunum og þakkargjörðarhátíðinni og bendir um leið á að jólin og áramótin geti orðið verri því margir fái lengra frí þá en um þakkargjörðarhátíðina.

„Við erum á mjög krítískum tímapunkti. Við megum ekki víkja frá staðreyndum og gögnum. Þetta er erfiður tími fyrir okkur öll,“ sagði Fauci.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fimmtán ára drengur lenti í skelfilegu slysi – Fékk öflugt raflost í liminn

Fimmtán ára drengur lenti í skelfilegu slysi – Fékk öflugt raflost í liminn
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því
Pressan
Fyrir 6 dögum

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“

Brandy hvarf að heiman – „Undarleg tilfinning sækir á mig“
Pressan
Fyrir 6 dögum

Maðurinn sem getur ekki hætt að stela eggjum villtra fugla fékk dóm

Maðurinn sem getur ekki hætt að stela eggjum villtra fugla fékk dóm