fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Ný leyniþjónusta í farvatninu í Svíþjóð – Ætlað að líkjast fremur MI6 en CIA

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. maí 2026 07:00

Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sett verður á fót ný leyniþjónusta í Svíþjóð sem ætlað er að stunda njósnir utan landsteinanna og gæta þannig þjóðaröryggis. Myndi slíka stofnun hafa svipað hlutverk fyrir Svíþjóð og CIA gegnir fyrir Bandaríkin og MI6 fyrir Bretland. Utanríkisráðherra Svíþjóðar vill raunar að nýja stofnunin líkist fremur MI6 en CIA.

Svíþjóð hefur nú þegar tvær leynisþjónustustofnanir. Öryggislögregluna SÄPO sem ætlað er einkum að gæta að öryggi innanlands til dæmis með því að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir. Hin er leyniþjónusta hersins (Militära underrättelse- och säkerhetstjänsten, skammstafað MUST) en hennar hlutverk er einkum að fylgjast með hernaðarlegum ógnum erlendis sem kunna að steðja að Svíþjóð.

Nýja stofnunin á að vera borgaraleg og einbeita sér að njósnum um ógnir erlendis frá. Á hún að heita á sænsku Utrikes underrättelsetjänst, skammstafað UND.

Nýja leyniþjónustan á að taka til starfa í janúar næsta ári en stjórnvöld rökstyðja nauðsyn þess að koma henni á fót með breyttu landslagi í öryggismálum Evrópu eftir árás Rússa á Úkraínu.

Í sænskum fjölmiðlum er nýja leyniþjónustan kölluð „hin sænska CIA“ en Maria Malmer Stenergard utanríkisráðherra sagðist á blaðamannafundi frekar vilja líkja henni við hina bresku MI6 en hina bandarísku CIA.

Samkvæmt Aftonbladet sagði utanríkisráðherran einnig að UND myndi einbeita sér að ógnum sem stöfuðu frá öðru en erlendum herjum og tilkoma hinnar nýju stofnunar væri viðbragð við sífellt flóknari og margþættari ógnum sem stöfuðu að Svíþjóð.

Heimild

UND mun fá víðtækar heimildir til njósna og þar með talið með því á fara vettvang utan landamæra Svíþjóðar. Stenergard segir umhverfið sem leyniþjónustur þurfi að fást við hafa breyst töluvert og mörg ríki hafa verið að styrkja getu sína á þessu sviði og það þurfi Svíþjóð einnig að gera.

Herinn mun greiða fyrir hluta af kostnaðinum við starfsemi UND og hin nýja stofnun mun taka við hluta af verkefnum sem leyniþjónusta hersins sér nú um. Eftir að UND tekur til starfa á hins vegar verkaskipting milli stofnanna tveggja að vera skýr, UND á að fylgjast með borgaralegum ógnum en MUST með þeim hernaðarlegu.

Stenergard segir einnig að með tilkomu UND eflist geta Svía til að sjá möguleg hernaðarátök fyrir en það hafi mörgum leyniþjónustustofnunum mistekist í aðdraganda árásar Rússa á Úkraínu.

Frumvarp um stofnun UND verður lagt fram á þingi í næsta mánuði og gert er eins og áður segir ráð fyrir að hin nýja leyniþjónusta taki til starfa í janúar 2027. Hvort þingkosningarnar í september næstkomandi muni einhverju breyta um stofnun hinnar nýju leyniþjónustu á eftir að koma í ljós.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna

Ólétta kostaði starfsmann á leikskóla vinnuna
Fréttir
Í gær

Notuðu þyrlu til að sækja ríkjan mann í krókódílsmaga

Notuðu þyrlu til að sækja ríkjan mann í krókódílsmaga
Fréttir
Í gær

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots
Fréttir
Í gær

Dæmi um að gististaðir aflýsi gistingum ferðamanna á sólmyrkvanum og auglýsi aftur á margföldu verði – „Algjörlega klikkað“

Dæmi um að gististaðir aflýsi gistingum ferðamanna á sólmyrkvanum og auglýsi aftur á margföldu verði – „Algjörlega klikkað“
Fréttir
Í gær

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“

Ásdís fær liðsauka frá vinstri við að verjast Kristrúnu – „Hvernig færðu það út að ég sé að verja íhaldið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“

„Við þurfum að gæta þess að fólk verði hluti af samfélaginu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“

Minnist Ingu eiginkonu sinnar sem lést í kajakslysi á miðvikudag: „Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana“