fbpx
Sunnudagur 17.maí 2026
Fréttir

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 17:30

Héraðsdómur Suðurlands. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur ákært konu með lögheimili í Bandaríkjunum fyrir hegningar- og umferðarlagabrot vegna umferðarlyss sem varð laugardaginn 7. desember árið 2024.

Konan ók þá bíl vestur eftir Suðurlandsvegi við Paradísarhelli í Rangárþingi eystra. Hún er sögð hafa verið óhæf til að stjórna bílnum vegna svefnleysis og hún hafi ekki gætt þess að hafa bílinn eins langt til hægri og unnt var og ekki gætt að því að nægileg hliðarbil væri milli bílsins og umferðar úr gagnstæðri átt. Ók hún út á rangan vegarhelming og framan á bíl sem ekið var úr gagnstæðri átt.

Afleiðingarnar voru þær að ökumaður bílsins sem kom úr gagnstæðri átt hlaut mikla áverka, meðal annars beinbrot og áverka á innri líffæri. Ökumaðurinn er Íslendingur.

Einnig slasaðist kona sem var farþegi í bílnum sem ákærða keyrði, hlaut hún bæði beinbrot og innvortis meiðsli. Hún krefst miskabóta frá ákærðu að fjárhæð 5 milljónir króna en ökumaðurinn sem slaðaðist krefst 3 milljóna.

Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu en málið verður þingfest við Héraðsdóm Suðurlands á Selfossi þann 11. júní næstkomandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Starfsmaður á hjúkrunarheimili tók debetkort vistmanns og straujaði það 48 sinnum – Fór á spreðerí í Portúgal

Starfsmaður á hjúkrunarheimili tók debetkort vistmanns og straujaði það 48 sinnum – Fór á spreðerí í Portúgal
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skallaði mann á sjómannadagsballi á Patró

Skallaði mann á sjómannadagsballi á Patró