fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Pressan
Laugardaginn 2. maí 2026 13:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona ein varð fyrir því mikla óláni að sitja föst í saur í þrjár klukkustundir eftir að klósettið á kamrinum, sem hún var að nota, brotnaði.

Konan var á heimleið til Canberra í Ástralíu eftir heimsókn hjá ættingjum í Darwin. Eiginmaður hennar og tvö börn voru með í för.

Þau stöðvuðu við kamarinn, sem er staðsettur við Henbury Meteorites Conservation Zone sem er um 145 km suðvestan við hinn afskekkta bæ Alice Springs.

Konan stóð í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir en þá vildi henni til happs að sölumaður átti leið fram hjá og vildi svo vel til að hann var með kaðal meðferðis sem hann gat látið síga niður til hennar.

NT hefur eftir sjónarvotti að konan hafi ríghaldið í kaðalinn, sem hafi verið bundinn við bíl sem var notaður til að draga hana upp. Þetta tók um 45 mínútur að sögn sjónarvottsins sem sagði einnig að holan hafi verið full af bleium, saur og þvagi.

Konan var flutt á sjúkrahús. Hún hafði ekki meiðst alvarlega að sögn lækna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Fyrir 2 dögum

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 3 dögum

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni

Breytingar gerðar á norðurkóresku stjórnarskránni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“