fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Vandræði liðsfélaga Glódísar um helgina vekja athygli

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 07:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ena Mahmutovic, markvörður Bayern Munchen, þurfti að klæðast búningi frá andstæðingunum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar gegn Barcelona um helgina.

UEFA bannaði Bayern að nota fjólubláa treyju sína þar sem hún þótti of lík búningi dómara eða markvarðar Barcelona, Cata Coll.

Í staðinn fékk Mahmutovic gulan æfingabol frá Barcelona og klæddist einnig stuttbuxum og sokkum frá heimaliðinu, þar sem var búið að líma yfir merki félagsins.

Barcelona vann leikinn 4-2 á Camp Nou og samanlagt 5-3, og er komið í úrslit keppninnar sjötta árið í röð. Í úrslitaleiknum mæta Börsungar Lyon, sem sló út Arsenal í undaúrslitunum.

Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði var að sjálfsögðu í byrjunarliði Bayern í leiknum og með bandið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar