fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Mikil reiði í höfuðborginni eftir að þessar myndir birtust um helgina

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 12:30

Mbappe naut sín um helgina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Real Madrid hafa lýst yfir mikilli óánægju með Kylian Mbappé á sama tíma og liðið virðist á leiðinni að missa spænska meistaratitilinn til erkifjendanna í Barcelona.

Barcelona er með ellefu stiga forskot á toppi La Liga og Real Madrid gæti formlega tapað titlinum í næstu viku þegar liðin mætast í El Clásico.

Getty Images

Reiði stuðningsmanna beinist að Mbappé þrátt fyrir að hann sé frá vegna vöðvameiðsla í vinstri fæti. Frakkinn vakti athygli þegar hann sleppti því að fylgjast með leik Real gegn Espanyol og fór þess í stað í frí til Sardiníu með kærustu sinni, leikkonunni Ester Expósito.

Myndir af parinu á snekkju fóru í dreifingu og stuðningsmenn tóku að birta færslur á samfélagsmiðlum með skilaboðunum „Mbappé out“.

Samkvæmt AS eru einnig innan herbúða Real menn ósáttir við tímasetningu ferðarinnar og telja hana hafa fjarlægt Mbappé frá klefanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar