fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
433Sport

Þetta hefur Klopp að segja um nýjan stjóra Liverpool

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 2. júní 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jurgen Klopp hefur áður farið fögrum orðum um Andoni Iraola, sem er nú að taka við Liverpool eftir brottrekstur Arne Slot.

Iraola hefur gert frábæra hluti sem stjóri Bournemouth. Klopp mætti Spánverjanum þrisvar sinnum á sínum tíma hjá Liverpool og vann alla leikina, en það breytti ekki áliti hans á þjálfaranum.

„Þeir sneru þessu algjörlega við. Vá, hann er alvöru þjálfari,“ sagði Klopp í janúar 2024 þegar Bournemouth hafði náð sér á strik eftir erfiða byrjun tímabilsins.

Getty Images

„Hann fann leið til að byggja upp mjög gott lið. Þeir spila góðan fótbolta, finna réttu lausnirnar á réttum augnablikum og nýta Dominic Solanke á frábæran hátt.“

Klopp hrósaði einnig varnarleik Bournemouth. „Hvernig þeir verjast er mjög gott, þeir eru mjög þéttir.“

Iraola tók við Bournemouth árið 2023 og eftir erfiða byrjun endaði liðið í 12. sæti á fyrsta tímabili hans. Á nýafstaðinni leiktíð endaði liðið í 6. sæti og tryggði sér Evrópudeildarsæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sirrý birtir myndband sem vekur athygli og umtal – „Þetta er okkur til skammar“

Sirrý birtir myndband sem vekur athygli og umtal – „Þetta er okkur til skammar“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Líkur á að Cucurella fari frá Chelsea – Þrjú stórlið hafa áhuga í heimalandinu

Líkur á að Cucurella fari frá Chelsea – Þrjú stórlið hafa áhuga í heimalandinu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Er að taka við af Mourinho

Er að taka við af Mourinho
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Beckham girnist Guardiola

Beckham girnist Guardiola
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Birta ítarlegan lista um allt það sem er bannað að taka með sér á leiki á HM í sumar

Birta ítarlegan lista um allt það sem er bannað að taka með sér á leiki á HM í sumar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Staðfestir að hann sé í krabbameinsmeðferð – Ætlaði að gera það frá sviðsljósinu en kann illa á tæknina

Staðfestir að hann sé í krabbameinsmeðferð – Ætlaði að gera það frá sviðsljósinu en kann illa á tæknina