
Slysið varð á Gunfighters-flugsýningunni sem haldin var á Mountain Home-herflugvellinum, um 80 kílómetra suðaustur af borginni Boise. Áreksturinn átti sér stað á öðrum degi sýningarinnar og vakti eðlilega mikinn óhug meðal áhorfenda.
Myndbönd frá vettvangi sýna þoturnar fljúga mjög þétt saman áður en þær rekast saman í loftinu. Í kjölfarið sjást neistar og brak áður en vélarnar falla til jarðar. Skömmu síðar myndaðist mikill reykjarmökkur sem steig til himins þegar vélarnar skullu til jarðar.
Samkvæmt fréttum bandarískra miðla voru vélarnar að öllum líkindum af gerðinni Navy Super Hornet.
Kynnir á flugsýningunni staðfesti við áhorfendur að öllum fjórum um borð hefði tekist að skjóta sér út úr vélunum áður en þær brotlentu.
Þetta var í fyrsta sinn í átta ár sem umrædd sýning er haldin en árið 2018 varð hörmulegt slys þegar svifflugmaður lést.
Ekki liggur enn fyrir hvað olli árekstrinum og er málið í rannsókn.
BREAKING: Two U.S. Navy jets collided mid-air and exploded during the Gunfighter Skies Air Show at Mountain Home Air Force Base. pic.twitter.com/R66ADWM2TY
— Breaking911 (@Breaking911) May 17, 2026