fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Pressan

Fjölskyldan borðaði ekki ofurunnin mat í fimm ár – Þetta voru afleiðingarnar

Pressan
Sunnudaginn 17. maí 2026 16:30

Skyndibitafæði telst margt til ofurunninna matvæla.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir fimm árum byrjaði bandarísk fjölskylda að skera niður neysluna á ofurunnum kjötvörum. Þetta varð til þess að innkaupavenjurnar breyttust. Til dæmis var meira keypt af til dæmis ávöxtum, grænmeti og kjöti.

Fjölskyldan hætti síðan smám saman að kaupa tilbúna rétti og mat frá stórmörkuðum. Þessi í stað var maturinn eldaður frá grunni heima.

Kostnaðurinn við kaup á til dæmis morgunverðarvörum og jógúrti minnkaði en jókst vegna kaupa á grunnhráefnum.

Þetta kallað einnig á að meiri tíma væri eytt í eldhúsinu því að elda mat frá grunni tók lengri tíma en að fara og kaupa tilbúinn mat. Þá varð mun mikilvægara en áður að skipuleggja matseðilinn og innkaupalistann.

The Guardian skýrir frá þessu og hefur eftir sérfræðingum að ofurunninn matur verði oft fyrir valinu því hann er ódýr og fljótlega að koma honum á matarborðið. Af þessum sökum eiga margar fjölskyldur erfitt með að sneiða honum.

Rannsókn, sem var birt í vísindaritinu The Lancet 2025, leiddi í ljós að mikil neysla á ofurunnum matvælum eykur hættuna á að fá ákveðna sjúkdóma. Hún leiddi einnig í ljós að mikil neysla ofurunnina matvæla tengist aukinni orkunotkun og meiri hættu á krónískum sjúkdómum.

Fjölskyldan upplifði ekki skyndilega eða merkjanlega breytingu á heilsunni. En bragðskynið breyttist hægt og rólega. Fjölskyldumeðlimum fór að finnast heimagerður matur mun betri og lystugri en á móti fóru margir tilbúnir réttir að virðast lítt aðlaðandi.

Þessi breyting á mataræðinu gerðist á löngum tíma og var ómeðvituð. Fjölskyldan hélt áfram að borða öðru hvoru unnin matvæli og sýnir þetta að heilbrigði snýst oft um að minnka neyslu á ákveðnum matvælum frekar en að hætta henni alveg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Í gær

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Í gær

Dularfullur fundur í grískum helli

Dularfullur fundur í grískum helli
Pressan
Í gær

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það

Flestir nota USB-tengið bara fyrir rafmagn en það getur miklu meira en það
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hann veitti mér frábærar fullnægingar“ – „Af hverju ríðum við ekki?“

„Hann veitti mér frábærar fullnægingar“ – „Af hverju ríðum við ekki?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt