
Í nýrri liþíumnámu þar verður liþíum grafið upp og er reiknað með að náman geti staðið undir 10% af þörf Evrópu fyrir efnið árlega. Náman skapar um 350 störf og vekur það auðvitað gleði margra en um leið hafa margir áhyggjur af umhverfisáhrifunum.
Liþíum er nauðsynlegt við framleiðslu nútíma raftækja og er orðið mjög mikilvægt hráefni og hafa sumir líkt hlutverki þess við hlutverk olíu í upphafi tuttugustu aldarinnar.
Kínverjar sjá heimsbyggðinni fyrir megninu af því liþíum sem notað er í dag og þess vegna hafa mörg evrópsk lönd mikinn áhuga á að koma sér upp liþíumnámum að sögn AFP.
Það er liþíum í öðrum Evrópulöndum, til dæmis Portúgal og Tékklandi. En eitt mesta magnið er að finna í Finnlandi að sögn Bo Langbacka, hjá finnsku jarðfræðistofnuninni.