fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Sýning á leið til Íslands fær útreið í Svíþjóð og foreldrar vilja endurgreitt – „Þau stóðu bara þarna og dönsuðu við lög“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 18:00

André og Jessica eru á meðal þeirra foreldra sem vilja fá endurgreitt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sýningin K-Pop Infinity fær harða útreið í umfjöllun sænskra dagblaða þar sem rætt er við foreldra sem vilja fá endurgreitt. Sýningin hafi verið mikil vonbrigði fyrir bæði börnin og foreldrana. Sýningin verður sett upp á Íslandi um helgina.

Dóttirin vildi fara eftir annað lagið

„Þetta var ekki sýning. Fólkið söng ekki, þetta var bara plat. Þau stóðu barn þarna og dönsuðu við lög. Það voru kannski tvö eða þrjú lög úr K-Pop Demon Hunters myndinni. Ég þekkti varla rest. Þetta var líka 45 mínútur,“ er haft eftir konu að nafni Jesscia Kessler í sænska dagblaðinu Aftonbladet.

Kessler, sem er 35 ára, keypti þrjá miða á 1800 sænskar krónur, eða 24 þúsund krónur, á sýninguna í Stokkhólmi en hún var einnig sett upp í Gautaborg. Sjö ára dóttir Jessicu er mikill aðdáandi K-Pop Demon Hunters kvikmyndarinnar sem K-Pop Infinity er byggt á. Hún vill núna fá endurgreitt og segir fleiri hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum.

„Þegar við fórum þaðan heyrðum við fyrir hversu miklum vonbrigðum foreldrarnir voru,“ segir Jessica. Segir hún að dóttir sín hafi viljað fara eftir annað lagið og sumir hafi farið fyrr af sýningunni.

Vill endurgreitt

Það sama kemur fram í umfjöllun sænska ríkisútvarpsins, SVT. Þar var meðal annars rætt við André Wallström, sem borgaði 1400 sænskar krónur til að sjá sýninguna með sex ára dóttur sinni.

Mynd sem foreldrar tóku af sýningunni.

„Þarna voru nokkur ungmenni sem stóðu og hreyfðu munninn með fyrir fram upptekinni tónlist. Þetta var auglýst sem mikil upplifun, en þetta var það ekki,“ segir André.

Hann segir einnig að dóttir sín hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum, en hún sé mjög ung.

„Hún er sex ára. Ef hún hefði verið kannski 9 eða 10 ára og hefði klætt sig meira upp þá hefði þetta verið enn þá verra,“ segir André. Hann hafi óskað eftir því að fá miðana endurgreidda.

Þetta eru ekki einu umsagnirnar. Í Aftonbladet segir að fjöldi foreldra hafi skrifað um sýninguna á samfélagsmiðla og lýst óánægju sinni.

Sett upp á Íslandi

K-Pop Infinity er á vegum dansks fyrirtækis að nafni Showbizz Concerts. Tvær sýningar eru settar upp í Hörpu á sunnudag, klukkan 15:00 og 18:00. Sýningin er einnig sett upp í Osló og í Zurich seinna í vor.

Sagt er að á sýningunni verði fluttir allir slagararnir úr kvikmyndinni K-Pop Demon Hunters, sem kom út í fyrra og hefur farið sigurför um heiminn. Sagt er að K-Pop Infinity sé sýning sem „enduruppgötvi það sem lifandi popp geti verið.“

Í umfjöllun SVT segir að Showbizz hafi ekki viljað svara viðtalsbeiðni um sýninguna. Hins vegar verði öllum viðskiptavinum sem sendi þeim skilaboð svarað með tölvupósti.

Í umfjöllun Aftonbladet segir að miðasöluaðilinn í Svíþjóð, Eventim, hafi vísað öllum spurningum á Showbizz.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon