fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Hvaða ráðherrar hafa staðið sig best og verst? Athyglisverðar niðurstöður úr könnun Maskínu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 10:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er sá ráðherra sem landsmönnum finnst hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur aftur á móti staðið sig verst.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum skoðanakönnunar Maskínu sem fram fór dagana 25. til 31. mars. Svarendur voru 969 talsins.

Þegar spurt var: Hvaða ráðherra finnst þér hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili? voru niðurstöðurnar eftirfarandi:

Flestir, eða 21,1% nefndu Kristrúnu Frostadóttur en þar á eftir komu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra (10,5%), Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra (10,3%), Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra (6,7%), Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra (2,8%), Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (2,7%), Alma Möller heilbrigðisráðherra (2,2%), Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra (1,9%), Ragnar Þór Ingólfsson (1,7%) og lestina rak svo Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra (1,3%).

Þegar spurt var: Hvaða ráðherra finnst þér hafa staðið sig verst á yfirstandandi kjörtímabili? voru niðurstöðurnar eftirfarandi:

Flestir, eða 24,6%, nefndu Ingu Sæland en þar á eftir komu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (19,8%), Eyjólfur Ármannsson (8,7%), Kristrún Frostadóttir (7,8%), Daði Már Kristófersson (6,0%), Alma Möller (5,9%), Jóhann Páll Jóhannsson (2,9%), Logi Einarsson (2,0%), Ragnar Þór Ingólfsson (1,9%), Hanna Katrín Friðriksson (1,4%) og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (1,0%).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon