fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Faðir á Norðurlandi úrskurðaður í nálgunarbann – Dóttirin tilkynnti um ofbeldi hans til lögreglu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 11. apríl 2026 10:30

Héraðsdómur Norðurlands vestra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 7. apríl staðfesti Landsréttur úrskurð Héraðsdóms Norðurlands vestra um að maður skuli sæta sex vikna nálgunarbanni gagnvart eiginkonu sinni og tveimur börnum á meðan meint ofbeldi hans gagnvart fjölskyldunni er til rannsóknar hjá lögreglu.

Þann 23. mars barst lögreglu tilkynningu um að stúlka hefði greint frá ofbeldi föður síns í garð móður sinnar. Sama dag gaf móðirin skýrslu hjá lögreglu og lagði fram kæru á hendur manninum. Lýsti hún þá tveimur nýlegum tilvikum ofbeldis sakbornings í sinn garð, þar sem hún kvað hann annars vegar hafa sparkað í hana og hins vegar slegið til hennar með krepptum hnefa. Þá lýsti hún því að börnin hefðu í öðru tilvikinu orðið vitni að ofbeldinu. Sama dag var einnig tekin skýrsla af manninum en hann kaus að tjá sig ekki að öðru leyti en að hann kvað ágreining uppi milli aðila. Þann sama dag leitaði konan til læknis í fylgd starfsmanns lögreglu og mátti þar skýrlega greina mar á vinstri síðu, sem og eymsli aftanvert á höfði.

Við frekari skýrslugjafir konunnar og barnanna upplýstist að ofbeldi mannsins hefði farið stigvaxandi og merki væri um að framkoma hans væri tekin að beinast að eldra barninu einnig þó að ekki væru áþreifanleg merki um að hann hefði beitt börnin ofbeldi einnig.

Af þessum sökum hafa bæði Héraðsdómur Norðurlands vestra og Landsréttur staðfest ákvörðun Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra um að maðurinn skuli sæta nálgunarbanni gagnvart eiginkonu sinni og börnum þeirra  í sex vikur, þannig að honum verði bannað að koma að eða vera við dvalarstað þeirra hverju sinni, á svæði sem afmarkast af 50 metra radíus mælt frá miðju húss þess þar sem þau dveljast hverju sinni, og jafnframt verði honum bannað að veita þeim eftirför, heimsækja þau eða nálgast á almannafæri sem nemur 50 metra radíus frá staðsetningu þeirra hverju sinni, eða vera með nokkru öðru móti í beinu sambandi við konuna og börnin, svo sem með símtölum, sms skilaboðum, tölvupósti eða með öðrum hætti.

Nánar má lesa um málið hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon