fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Svandís gagnrýnir orðræðu varðandi heilbrigðismál – „Hér var ekkert gert fyrr en ég kom“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 15:00

Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umræða um ástandið í heilbrigðiskerfinu hefur sjaldan verið háværari en enda er ástandið afleitt, sér í lagi á Bráðamóttökunni þar sem starfsfólk er löngu komið að þolmörkum. Þá er gríðarlegur fráflæðisvandi á spítalanum sem helgast af því að uppbygging hjúkrunarrýma hefur verið alltof hæg og ekki haldið í við fólksfjölgun.

Alma Möller, núverandi heilbrigðisráðherra, var til viðtals í Sprengisandi í morgun þar sem hún sagði samfélagið vera áratugum of seint í uppbyggingu kerfisins og til að mynda hefði ekki verið hlustað á varnaðarorð hennar þegar hún gegndi stöðu Landlæknis.

Svandís Svavarsdóttir, sem gegndi embætti heilbrigðisráðherra, 2017-2021, kvaddi sér hljóðs með pistli á Facebook nú fyrir stundu þar sem að hún virtist skjóta á Ölmu og sagði það auðvelt að lesa tölur aftur í tímann og segja að hér hefði ekki verið gert nóg. „Við höfum sannarlega aldrei gert nóg en oft er líka raunveruleikinn flóknari,“ skrifar Svandís.

Bendir hún til að mynda á áhrif heimsfaraldursins á uppbygginguna og telur upp hluti skref sem tekin voru til að færa kerfið í aðrar og betri áttir, að hennar mati:

Á árunum 2020–2021 tók covid-faraldurinn yfir allt í heilbrigðiskerfinu. Forgangsröðun, mannafli og framkvæmdageta breyttust á örfáum vikum. Það hafði áhrif á uppbyggingu hjúkrunarrýma eins og á svo margt annað.
Á sama tíma var þó verið að færa kerfið í aðrar, og að mínu mati betri áttir:
– hertar kröfur um gæði rýma (tvíbýli og þríbýli aflögð),
– fjölgun endurhæfingarrýma og sérhæfðra rýma fyrir aldraða með geðrænan vanda,
– aukið fjármagn í heimahjúkrun og heimaþjónustu,
– meiri áhersla á dagþjálfun og sveigjanleg úrræði,
– Heilbrigðisþing 2021 helgað öldrunarþjónustunni,
– sett upp lifandi greiningar- og tölfræðikerfi til að fylgjast með þróuninni í rauntíma.
Og þetta var hluti af stærri kerfisbreytingu:
– ákvörðun tekin um staðsetningu, skóflustungu, fjármögnun og uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut,
– átakshópur um bráðamóttökuna sem naut fulltingis tveggja erlendra sérfræðinga og skilaði tillögum snemma árs 2020,
– ákvarðanir og samningar um uppbyggingu og hjúkrunarþjónustu víða um land – í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, á Akureyri, Húsavík, Höfn og Selfossi, og eru þá aðeins nokkur dæmi nefnd.

Bendir Svandís að íslenskt samfélag búi nú við fordæmalausa fólksfjölgun og hraða breytingu á aldurssamsetningu þjóðarinnar.

„Þörfin fyrir þjónustu eykst hraðar en nokkru sinni fyrr og það kallar á langtímahugsun, ekki skyndilausnir. Þess vegna skiptir máli að standa með opinbera heilbrigðiskerfinu. Að byggja það upp, fjármagna vel og vernda í stað þess að vera stöðugt í “aðhaldi” og eltingarleik við bráðavanda. Umræðan verður betri þegar hún byggir á heildarmynd frekar en pólitík sem gengur út á að segja: „Hér var ekkert gert fyrr en ég kom.“ Kerfið breytist í skrefum, með mörgum aðilum, yfir langan tíma. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að gera það betra og það gerist ekki með því að strika yfir það sem á undan kom,“ skrifar Svandís.
Hér má lesa pistil hennar í heild sinni:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands

Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“

Eyddi allt að 80 þúsund krónum á dag í krakk: „Myndi ekki óska mínum versta óvini að festast í þessari ógeðslegu fíkn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon