fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Öllum ungmennum á Suðurnesjum boðið á skyndihjálparnámskeið

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 09:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rauði krossinn býður öllum ungmennum á aldrinum 12–16 ára sem búsett eru á Suðurnesjum á skyndihjálparnámskeiðið Bjargvættir – viðnámsþróttur. Námskeiðin eru 3-4 klukkustundir að lengd og verða haldin reglulega næstu vikur og mánuði. Þátttaka er ókeypis en krefst skráningar. Kennsla er í höndum reyndra leiðbeinenda á vegum Rauða krossins í skyndihjálp.

„Okkur hjá Rauða krossinum á Suðurnesjum er annt um að ungmennin í samfélaginu okkar öðlist aukið sjálfstraust og öryggi til að bregðast við óvæntum aðstæðum,“ segir Fanney Grétarsdóttir, deildarstjóri Rauða krossins á Suðurnesjum. „Það mun leiða til sterkara og öruggara samfélags til framtíðar.“

Jarðhræringar á Reykjanesi á undanförnum árum hafa skekið innviði og haft í för með sér fólksflutninga. Vegna þessara áfalla hefur Rauði krossinn lagt sig fram við að hlúa að Suðurnesjabúum og auka viðnámsþrótt þeirra og hefur notið stuðnings fyrirtækisins Rio Tinto við það verkefni.

„Á Bjargvættanámskeiðinu læra ungmennin skyndihjálp til að bregðast við í neyð en sú færni valdeflir fólk einnig á öðrum sviðum,“ segir Fanney. Námskeiðin eru sérstaklega útfærð með ungmenni á Suðurnesjum í huga. „Á námskeiðinu fá þau því líka verkfæri til að takast á við stærri atburði og auka viðnámsþrótt.“

Námskeiðin Bjargvættir – viðnámsþróttur verða haldin í húsnæði Rauða krossins á Suðurnesjum að Smiðjuvöllum 9, Reykjanesbæ.

Hægt er að skrá sig á námskeiðin á heimasíðu Rauða krossins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Eldum rétt og Ísfugl auka samstarfið

Eldum rétt og Ísfugl auka samstarfið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Börnin eru auðvitað framtíðin, ekki ég, hvað þá ég eftir 15 ár sem er farinn að bíða eftir að drepast“

„Börnin eru auðvitað framtíðin, ekki ég, hvað þá ég eftir 15 ár sem er farinn að bíða eftir að drepast“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“