fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
433Sport

Breytt stefna á RÚV sem setur Heimsmeistaramótið í annað sætið

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. júní 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

RÚV er með sýningaréttinn á Heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu sem hefst í næstu vikur. Stór hluti leikja verður sýndur á hliðarrás RÚV frekar en á aðalrás ríkismiðilsins.

104 leikir fara fram á HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Bestu leiktímarnir eru frá 19:00 til 22:00 á kvöldin, þeir leikir fá ekkert pláss á RÚV fyrr en þegar langt er liðið á mótið.

Í riðlakeppninni og í 32 liða úrslitum eru allir þeir leikir sem eru á bestu tíma fyrir Íslendinga settir á RÚV 2. Þá verður HM kvöldið frumsýnt á RÚV2 en fær pláss á aðalrás félagsins í kringum miðnætti.

Getty Images

Nokkuð margir leiktímar eru á næturnar og þá færast þeir leikir yfir á RÚV. Er þetta í takt við þá stefnu sem Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV hefur talað fyrir og gerði á stjórnarfundi RÚV í vetur.

Í fundargerð stjórnar kom fram að á fundinum hafi verið rætt um samspil á milli RÚV 1 og RÚV 2 þegar kemur að íþróttum og fréttum. Óskaði Stefán Jón eftir skýrari línum um verkaskiptingu sjónvarpsrásanna.

„Nefndi til dæmis að í útvarpi væri Rás 2, „íþróttarásin” að öllu jöfnu og gæti sama átt við sjónvarp. Stefna ætti að því að hnika ekki föstum aðalfréttatíma sjónvarps sem nú sé kl. 19:00 á RÚV 1 að óþörfu meðan RÚV 2 væri ónotuð. Að hans mati væri fréttatíminn gengisfelldur með því að færa hann á breytilega jaðartíma í dagskrá og gæta yrði að því að hlutverk og ábyrgðarskylda RÚV gagnvart fréttaflutningi væri víðtæk og mikil, ekki síst þegar framboð af kvöldsjónvarpsfréttum almennt væri minna nú en áður,“ segir í fundargerð stjórnar.

Það er því ljóst að Stefán Jón hefur fengið sínu framgengt en hingað til hefur fréttatíminn verið færður þegar stærstu íþróttaviburðir hvers árs fara fram. Hjá BBC í Bretlandi er til dæmis aðalstöð ríkismiðilsins nýtt í að sýna alla leikina sem þeir hafa rétt til að sýna, annari dagskrá er hliðrað til á meðan mótið fer fram.

Smelltu hér til að sjá á hvaða stöð leikirnir verða

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eigandi Napoli hótar því að sparka De Bruyne og Lukaku út í sumar

Eigandi Napoli hótar því að sparka De Bruyne og Lukaku út í sumar
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sara Björk kynnt til leiks hjá Haukum með gæsahúðar myndbandi

Sara Björk kynnt til leiks hjá Haukum með gæsahúðar myndbandi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Iraola með mjög óvænt nafn á blaði – Er í liði sem skítféll

Iraola með mjög óvænt nafn á blaði – Er í liði sem skítféll
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Stórfurðuleg uppákoma í miðjum fréttatíma – Sparkað í rassinn á veðurfréttakonunni

Stórfurðuleg uppákoma í miðjum fréttatíma – Sparkað í rassinn á veðurfréttakonunni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ógeðfelld líkamsárás á Tenerife vekur athygli – Þegar búið að dæma

Ógeðfelld líkamsárás á Tenerife vekur athygli – Þegar búið að dæma
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Gefa skít í ákvörðun UEFA og undirbúa liðið fyrir Evrópukeppni

Gefa skít í ákvörðun UEFA og undirbúa liðið fyrir Evrópukeppni