fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Pressan

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi

Pressan
Þriðjudaginn 19. maí 2026 19:30

Mynd/DWP

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bretar fara ekki mjúkum höndum um þá sem gerast uppvísir að bótasvikum og telja sumir að refsingar fyrir slíkt séu nú farnar að þyngjast nokkuð. Kona var nýlega dæmd í óskilorðsbundið fangelsi eftir að hún varð uppvís að svikum.

Konan heitir Helen Green og er tæplega fimmtug. Hún hafði frá janúar árið 2020 og fram til mars árið 2023 þegið rúmlega fjórar milljónir af svokölluðum PIP-bótum, sem eru bætur sem eru ætlaðar til að koma til móts við aukakostnað og stuðningsþarfir í daglegu lífi þeirra sem glíma við langvarandi veikindi eða örorku.

Bæturnar fékk hún á grundvelli þess að hún glímdi við alvarlega liðagigt og brjósklos sem gerði það að verkum að hún væri meira og minna bundin við heimili sitt og gæti ekki með góðu móti gengið lengur en í fimm mínútur í senn án þess að notast við hækjur.

Hún sagðist þurfa aðstoð við að sinna persónulegum þrifum, við að klæða sig, við að elda og við að borða og drekka.

Bæturnar fékk hún en svo barst ábending til svikadeildar atvinnu- og lífeyrismálaráðuneytisins (DWP) um að Green væri meðlimur í hlaupahópi og hefði nýlega keppt í 10 kílómetra hlaupi þar sem hún hljóp 10 kílómetra á einni klukkustund og þremur mínútum. Eins sagði í ábendingunni að Green væri dugleg í ræktinni og mætti þangað reglulega til að æfa.

Eftirlitsmyndavélar úr ræktinni sýndu Green í góðum gír í zumba-danstímum, bardagaíþróttum, úthaldsæfingum og hjólatímum.

Augljóst þótti því að Green væri ekki eins hreyfihömluð og hún hélt fram.

Hún hefur nú verið dæmd fyrir svikin en á þriðjudag var henni gert að sæta 7 mánaða óskilorðsbundnu fangelsi.

Mandy Tobias, frá ákæruvaldinu, lýsti því svo að Green hefði uppskorið sem hún sáði.

„Helen Green þóttist vera hreyfihömluð en þess í stað var hún virkur hlaupari og stundaði líkamsrækt. Hún gerði þetta af eigin græðgi þar sem hún fyllti vasa sína af illa fengnu fé.“

Ráðherrann Andrew Western segir að svik Green séu löðrungur fyrir skattgreiðendur og þá sem treysta á PIP-bætur til að lifa lífinu.

„Helen Green var ekki bara að brenna kaloríum í ræktinni, hún var líka að selja lygar og rannsakendur okkar komu upp um hana. Látum þetta vera öðrum víti til varnaðar – þú sleppur ekki undan svikadeildinni.“

The Standard greinir frá

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ökumaður rafkrossara fékk þungan dóm: „Þessi mynd mun ásækja mig til dauðadags“

Ökumaður rafkrossara fékk þungan dóm: „Þessi mynd mun ásækja mig til dauðadags“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stjarnan grobbar sig – Segist hafa sofið hjá 12.500 konum

Stjarnan grobbar sig – Segist hafa sofið hjá 12.500 konum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hitinn í svefnherberginu getur haft áhrif á heilsufar þitt

Hitinn í svefnherberginu getur haft áhrif á heilsufar þitt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Efninu hefur verið líkt við olíuna í upphafi tuttugustu aldarinnar – Nú er það grafið úr jörðu í Finnlandi

Efninu hefur verið líkt við olíuna í upphafi tuttugustu aldarinnar – Nú er það grafið úr jörðu í Finnlandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tryzub-laserkerfið getur hæft dróna í 5 km fjarlægð

Tryzub-laserkerfið getur hæft dróna í 5 km fjarlægð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Pútín situr fastur í Úkraínu og óróinn vex heima fyrir

Pútín situr fastur í Úkraínu og óróinn vex heima fyrir