fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Pressan

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það

Pressan
Sunnudaginn 17. maí 2026 09:30

Höfuðverkur herjar á marga að morgni til. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar vakna um 8% fullorðinna með höfuðverk á morgnana. Konur lenda oftar í þessu en karlar. Margvíslegar ástæður geta verið að baki höfuðverknum, allt frá allt of mikilli koffínneyslu eða of lítillar, til tannverkja.

Óháð ástæðunni þá er allt annað en þægilegt að vakna með höfuðverk. Sem betur fer eru til ráð til að koma í veg fyrir þetta.

Vertu meðvitaður um koffínneysluna – Koffín getur bæði linað höfuðverk og valdið höfuðverk. Hæfilegt magn getur dregið úr verkjum yfir daginn en ef maður drekkur of mikið koffín en fær ekkert eftir nætursvefn, þá getur maður fengið svokallaðan „fráhvarfs-höfuðverk“.

Aðeins 200 mg af koffíni á dag, það svarar til um tveggja bolla, geta valdið höfuðverk ef maður hættir svo snögglega að drekka það.

„Þegar það vantar skyndilega koffín, víkka æðarnar í heilanum og það getur valdið höfuðverk að morgni. Til að koma í veg fyrir þetta ætti maður stig af stigi að draga úr koffínneyslunni í nokkrar vikur,“ sagði Rhiannon Lambert, næringarfræðingur, í samtali við The Times.

Ef einkennin halda áfram að gera vart við sig, er rétt að hafa samband við lækni.

Haltu reglulegum svefnryþma – Hollensk rannsókn sýndi að 40% af þeim, sem þjást af mígreni, upplifa að höfuðverkjaköstin byrja á morgnana, oft á milli klukkan 4 og 9. Þetta bendir til tengsla við náttúrulegs dægurryþma líkamans.

Neil Stanley, svefnsérfræðingur, segir að meira að segja smávegis truflanir á svefnrútínunni geti valdið höfuðverk.

„Of lítill svefn, næturvinna, ferðaþreyta eð að sofa lengi um helgar getur valdið mígreni á morgnana. Reyndu að vera með fasta hátta- og vinnutíma,“ sagði hann.

Aukning á magni stresshormónsins kortísól á morgnana getur einnig valdið höfuðverk.

Íhugaðu að nota bitvörn – Að gnísta tönnum eða spenna kjálkavöðvana er algeng orsök höfuðverks að morgni að sögn Nigel Carter, tannlæknis. Margir vita ekki að þeir gera þetta en ástæðan fyrir þessu er oft stress, kvíði eða breytingar á tönnunum.

Hann sagði að stundum þurfi að laga bitið og geti bitvörn komið að gagni ef hún er notuð á nóttunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður

Hún fékk dularfullan tölvupóst – Seinna um daginn gerðist hryllilegur atburður
Pressan
Í gær

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk

101 maður á einum degi var ekki vandamál – Nú hefur kærasti Lily Phillips sett skýr mörk
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“

Hryllingurinn á sveitabænum – 4 ára stúlka svaraði í símann – „Mamma er orðin svört“
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hann veitti mér frábærar fullnægingar“ – „Af hverju ríðum við ekki?“

„Hann veitti mér frábærar fullnægingar“ – „Af hverju ríðum við ekki?“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín

Fyrrum yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 segir að eitt geti brotið Pútín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt

Þess vegna ættirðu að setja ólífuolíu út í kaffið þitt