fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Pressan

Fjölskyldan hafði ekki hugmynd um að ókunnugur maður hélt til í húsinu – Hafði hryllingsverk í huga

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 23. júlí 2022 22:00

James og Brittany Campbell. Mynd:Lifetime

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hlýtur að vera skelfilegt að uppgötva að ókunnugur maður haldi til á heimilinu og varla bætir það úr skák að komast að því að hann hafi búið þar í langan tíma án þess að þú vissir af því.

Og ekki nóg með að hann hafi búið á heimilinu, heldur hafi hann einnig haft í hyggju að myrða heimilisfólkið og hluta lík þess í sundur.

Þessu lentu Brittany og James Campbell og tveir ungir synir þeirra í að sögn New York Post.

Í nýjum Lifetimeþætti, sem heitir „PhroggingHider in My House“ segir fjölskyldan frá skelfilegri lífsreynslu sinni.

Sagan hófst 2019, skömmu eftir að þau höfðu gengið í hjónaband og flust til Honolulu á Hawaii með syni sína.

Fljótlega fór þeim að finnast sem eitthvað undarlegt væri á seyði í húsinu. Til dæmis fundu þau öðru hvoru opna kassa í bílskúrnum og hlutir voru færðir úr stað. Brittany tók einnig nokkrum sinnum eftir því að dyr voru opnaðar og skellt.

„Ég hélt að hún væri móðursjúk,“ sagði James um viðbrögð sín þegar Brittany sagði honum frá þessu og bætti við: „Ég varð svolítið pirraður út í hana.“

En það kom síðan í ljós að Brittany hafði rétt fyrir sér. Þegar fjölskyldan kom heim eftir vikulangt frí komst hún að óhugnanlegum sannleikanum.

Þegar þau reyndu að opna útidyrnar til að komast inn var þeim strax skellt á þau. „Það var maður sem kíkti út um dyrnar og reyndi að halda þeim lokuðum svo við kæmumst ekki inn. Hann sagði yfirvegað við okkur: „Þetta er ekki húsið ykkar,“ sagði James.

Hann sótti hamar til að verja sig og náði síðan að koma manninum út í garð á meðan Brittany hringdi í lögregluna.

Þegar lögreglumenn komu á vettvang handtóku þeir manninn, hinn 23 ára Ezequiel Zayas, en sögunni var ekki þar með lokið.

Ezequiel Zayas. Mynd:Lifetime

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í ljós kom að hann hafði lagt heimili fjölskyldunnar algjörlega í rúst á meðan hún var í fríinu. Einnig kom í ljós að hann hafði búið um langa hríð í húsinu og hafði haldið nákvæma dagbók og tekið eitt og annað upp á myndband sem gerðist á heimilinu.

Hann hafði einnig komið hnífum fyrir og fjölskyldan fann bréf frá honum þar sem hann hafði skrifað nákvæmar lýsingar á hvernig hann ætlaði að myrða þau öll og hluta lík þeirra í sundur.

Hann lýsti því meðal annars að hann ætlaði að framkvæma „handágræðslu“ og setja „endurgera kynlífsathafnir“.

„Hann ætlaði að leika skurðlækni og ekki á fallegan hátt eins og maður gerir þegar maður er barn. Hann hafði skrifað hvernig hann ætlaði að gera aðgerðir á okkur svo við yrðum fullkomnar manneskjur,“ sagði Brittany.

Ekki er nákvæmlega vitað hversu legni Zayas bjó í húsinu.

Hann var aðeins ákærður fyrir innbrot og var látinn laus skömmu eftir handtökuna þrátt fyrir mótmæli fjölskyldunnar.

Hann gekk þó ekki laus lengi því hann var handtekinn á nýjan leik fyrir að skemma búddahof.

Á meðan hann afplánaði dóm árið 2020 varð hann samfanga sínum að bana og var ákærður fyrir morð. Niðurstaða geðrannsóknar var að hann væri svo veikur að ekki væri hægt að dæma hann til refsingar. Hann dvelur því á geðsjúkrahúsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Karlar sem hlusta á konuna sína ná meiri árangri

Karlar sem hlusta á konuna sína ná meiri árangri
Pressan
Í gær

Ökumaður rafkrossara fékk þungan dóm: „Þessi mynd mun ásækja mig til dauðadags“

Ökumaður rafkrossara fékk þungan dóm: „Þessi mynd mun ásækja mig til dauðadags“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bætir í áhyggjur Harry prins – Óttast að versta martröð hans verði að veruleika

Bætir í áhyggjur Harry prins – Óttast að versta martröð hans verði að veruleika
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það

Vaknar þú oft með höfuðverk á morgnana? – Þrjú ráð til að koma í veg fyrir það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sjúklingur lést á skurðarborðinu – Læknir fjarlægði rangt líffæri

Sjúklingur lést á skurðarborðinu – Læknir fjarlægði rangt líffæri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins

Skoðanakannanir sýna afgerandi mun á kjósendum Demókrata- og Repúblikanaflokksins