Tveir voru handteknir á hraðbraut nærri Amsterdam. Frank Paauw, yfirlögregluþjónn, sagði að þeir hafi verið í bíl og hafi væntanlega verið á flótta. Þriðji maðurinn var handtekinn í Amsterdam.
Femke Halsema, borgarstjóri, sagði að de Vries væri alvarlega særður og berðist fyrir lífi sínu.
Samkvæmt fréttum erlendra fjölmiðla þá var hann skotinn í höfuðið af stuttu færi. Hann er 64 ára. Árásin átti sér stað klukkan 19.30 fyrir framan hús RTL þar sem de Vries kom fram í sjónvarpsþætti. Hann er þekktur fyrir umfjöllun um afbrot og glæpasamtök.
Fyrir tveimur árum skýrði hann frá því að hann væri á dauðalista hins marokkóska/hollenska Ridouan Taghi sem er grunaður um aðild að minnst 10 morðum tengdum skipulagðri glæpastarfsemi.
Fyrr á árinu hófust réttarhöld yfir Taghis og hefur de Vries komið við sögu í þeim sem ráðgjafi helsta vitnis ákæruvaldsins. Réttarhöldin eru sögð ein sú stærstu sinnar tegundar frá upphafi í Hollandi.