fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Henti óvart hörðum diski með Bitcoin að verðmæti um 273 milljóna dollara

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 23. janúar 2021 22:00

Bitcoin er vinsæl rafmynt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir um átta árum henti tölvusérfræðingurinn James Howells hörðum diski. Á diskinum voru 7.500 Bitcoin sem hann hafði grafið eftir og aflað sér fjórum árum áður. Þegar verð rafmyntarinnar rauk upp fór hann að leita að harða diskinum en áttaði sig þá á að hann hafði óvart hent honum. Hann hefur nú boðið borgaryfirvöldum í Newport City í Wales, þar sem hann býr, 70 milljónir dollara ef þau heimila honum að grafa upp landfyllingu, sem var ruslahaugur, í leit að harða disknum.

Howells telur að diskurinn hafi verið grafinn þar. Hann hefur sótt um heimild til að grafa ákveðinn hluta landfyllingarinnar upp en þar telur hann að diskurinn hafi endað. CNN skýrir frá þessu.

Bitcoin var búið til 2009 af óþekktum forritara eða hópi forritara sem kalla sig Satoshi NakamotoBitcoin er rafmynt sem er geymd í „stafrænu veski“ í tölvu eigandans. Það er síðan hægt að nota myntina til að greiða fyrir eitt og annað. Verðmæti myntarinnar náði nýlega áður óþekktum hæðum en nú selst ein eining á 37.000 dollara.

Þegar Howell áttaði sig fyrst á því að hann hefði hent harða disknum var verðmæti rafmyntar hans um 9 milljónir dollara. Miðað við núverandi verð hennar telur hann að heildarverðmætið sé um 273 milljónir dollara, svo það er eftir miklu að slægjast.

Í samtali við CNN sagðist hann hafa boðið borgaryfirvöldum í Newport fjórðung upphæðarinnar, sem mætti síðan deila niður á íbúana, ef hann finnur og kemst yfir rafmyntina á nýjan leik. Um 316 þúsund manns búa í borginni. „En því miður hafa þau hafnað þessu tilboði og vilja ekki einu sinni ræða við mig um það,“ sagði hann um viðbrögð borgaryfirvalda.

Talskona borgaryfirvalda sagði CNN að nokkrum sinnum hafi verið haft samband við þau síðustu 8 árin til að kanna möguleikana á að finna harðan disk sem sé sagður innihalda  mikil verðmæti. Borgaryfirvöld hafi ekki hafnað tilboðum sem sett hafa verið fram, þau hafi eingöngu bent á að uppgröftur á ruslahaugunum sé óheimill samkvæmt lögum og reglum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar

Leynidagbók grunnskólakennarans kom upp um níðingsverk hennar
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig