fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
433Sport

Staðfesta andlát hins 16 ára drengs – Faðir hans er þekktur rokkari

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 21. maí 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil sorg ríkir í pólsku knattspyrnusamfélagi eftir að hinn 16 ára gamli Piotr Dawid lést skyndilega. Hann þótti mikið efni og lið á Ítalíu höfðu sýnt honum áhuga.

Piotr lék með akademíu pólska félagsins Ruch Radzionków og stundaði nám við íþróttaskóla í bænum Radzionków. Fréttirnar af andláti hans hafa vakið mikla samúð meðal liðsfélaga, þjálfara og vina hans.

Faðir hans, tónlistarmaðurinn Tomasz „Haja“ Dawid er þekktur rokkari í Póllandi, staðfesti andlátið á samfélagsmiðlum með hjartnæmri færslu ásamt svarthvítri fjölskyldumynd.

„Sonur minn, heimurinn okkar hrundi í dag. Heimurinn er ósanngjarn. Við munum alltaf muna þig sem glaðan og brosandi dreng fullan af góðmennsku,“ skrifaði hann.

Hann bætti við. „Við munum alltaf elska þig.“

Skólinn og akademía félagsins sendu einnig frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem Piotr var minnst með hlýjum orðum. „Piotr verður í minningum okkar sem brosmildur, hjálpsamur og góður einstaklingur. Hann færði samfélaginu hlýju og vinsemd og var vinur sem alltaf var hægt að treysta á,“ sagði meðal annars í yfirlýsingunni.

Fjölskyldan hefur ekki gefið upp dánarorsök og hefur óskað eftir friðhelgi á þessum erfiða tíma. Andlát hins unga leikmanns hefur skekið bæði félagið og nærumhverfi hans enda þótti Piotr afar efnilegur bæði innan vallar og utan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Er sögð vera fallegasta kona í heimi – Vekur athygli eftir að hún vann kosninguna

Er sögð vera fallegasta kona í heimi – Vekur athygli eftir að hún vann kosninguna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Staðfest hvenær og hvernig sigurhátíð Arsenal verður

Staðfest hvenær og hvernig sigurhátíð Arsenal verður
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns