fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 21. maí 2026 11:00

Pawel bendir á skjal Sjálfstæðisflokksins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segist ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji nú að tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið verði samþykkt. Það komi fram í breytingartillögu flokksins. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir um mistök í skjalavinnslu að ræða.

„Sjálfstæðisflokkurinn á þinginu er kominn í ógöngur í þessu þjóðaratkvæðagreiðslumáli. Í gær hömuðust þingmenn hans á Flokki fólksins fyrir að vilja samþykkja þjóðaratkvæði um aðild. Því það væri skref í átt að aðild! „Og er FF ekki á móti aðild?!““ segir Pawel í færslu á samfélagsmiðlum í dag. „Það er kaldhæðnislegt því Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur (þ.e. fulltrúar hans í utanríkismálanefnd) leggur til að tillagan verði samþykkt, með örfáum breytingum.“

Breytingartillaga

Vísar hann í skjal sem Diljá Mist Einarsdóttir og Hildur Sverrisdóttir, þingkonur Sjálfstæðisflokksins, skiluðu inn til Alþingis. Í skjalinu segir að lagt sé til að tillaga um viðræður verði samþykkt með breytingartillögu.

Pawel bendir á að þessi breyting feli í sér að atkvæðagreiðslunni  yrði frestað um nokkrar vikur, spurningu aðeins breytt og skerpt á samningsmarkmiðunum.

„Mistök í skjalavinnslu“

„Sjálfstæðisflokkurinn er, með eigin rökum, að samþykkja að við tökum skref í átt að aðild,“ segir Pawel. „Ég hafði bent á þetta í nokkrum andsvörum fram eftir degi. Undir miðnætti sagði Jón Pétur Ziemsen svo, eftir að hafa fengið skilaboð frá félögum sínum, að þetta væru … MISTÖK Í SKJALAVINNSLU!“

Nú í morgun sé skjalið hins vegar enn þá inni á vef Alþingis, óbreytt.

Á hlaupum

„Ég var reyndar dálítið ánægður með að Sjálfstæðismenn væru til í að leyfa kjósendum að taka ákvörðun um aðildarviðræður við ESB, með ákveðnum lagfæringum, þá er það allavega einhver grundvöllur mögulegs samtals. En mér heyrist þeir því miður á hlaupum undan því,“ segir Pawel. „Þannig að árangur gærdagsins er sem sagt að mér tókst, með of mörgum spurningum, að gera afstöðu Sjálfstæðisflokksins í málinu verri.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 
Fréttir
Í gær

Halla segir tvennt vera sláandi við stýrivaxtahækkunina – „Hún er orðin aðkallandi spurningin“

Halla segir tvennt vera sláandi við stýrivaxtahækkunina – „Hún er orðin aðkallandi spurningin“
Fréttir
Í gær

Andartaki eftir að hún lagði bílnum sínum hófst martröðin – „Ég er að deyja“

Andartaki eftir að hún lagði bílnum sínum hófst martröðin – „Ég er að deyja“