fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Fókus

Hildi nóg boðið: Þetta fær hún greitt fyrir 790 hlustanir á Storytel

Fókus
Fimmtudaginn 21. maí 2026 09:30

HIldur Knútsdóttir. Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Knútsdóttir rithöfundur fær greiddar 19.892 krónur fyrir skatt fyrir samtals 790 hlustanir á bók sína Möndlu á Storytel.

Hildur skrifaði færslu á Facebook í gær um málið sem vakti talsverða athygli. Reiknaði Hildur að fyrir hverja hlustun fái hún rétt rúmlega 25 krónur. Þá reiknaði hún út að fyrir hvert streymi á bókinni Urðarhvarfi fái hún greiddar heilar 19 krónur.

„Þetta er bara svo fáránlegt!,“ segir Hildur í athugasemd við eigin færslu og bætir svo við að til samanburðar fái hún greiddar 172 krónur fyrir hvert útlán á bókasafni.

Margir hafa lagt orð í belg við færslu Hildar og í þeim hópi eru meðal annars rithöfundar.

„Það er svakalegt – þannig að til að fá ein mánaðarlaun – hefði þurft 30 sinnum meiri hlustun – eða 20.000 hlustanir,“ segir Andri Snær Magnason. „Minnstu ekki á þetta ógrátandi,“ segir rithöfundurinn Þórdís Gísladóttir.

„Eigi skal gráta Björn bónda, heldur safna liði og leita hefnda. Skiptum út síðasta orðinu og setjum t.d. inn orðið réttlæti í eignarfalli í staðinn. Við erum í fjölmennum samtökum, þau eru við stýrið. Siglum,“ segir Vigdís Grímsdóttir og svarar Hildur því til að hún hafi beðið um að bækurnar hennar yrðu teknar út af Storytel.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer

Jennifer segir Ben eiga að gera þetta eftir skilnaðinn við Jennifer
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun

Þriggja metra háir ísjakar í brottfararverslun
Fókus
Fyrir 5 dögum

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið

5 hlutir sem hamingjusömustu pörin gera á kvöldin í staðinn fyrir að glápa á sjónvarpið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“

Love Island-sigurvegari telur sig hafa lausnina: „Þá mun sko dramað koma!“