

Enzo Maresca virðist vera orðinn helsti kandídatinn til að taka við Manchester City ef Pep Guardiola yfirgefur félagið eftir tímabilið. Ítalinn hefur lengi verið talinn einn af nánustu lærisveinum Guardiola og innan félagsins ríkir mikil trú á honum.
Maresca vakti athygli þegar hann tók við Chelsea árið 2024 og fékk fljótlega gælunafnið „Diet Pep“ vegna líkinda sinna við Guardiola bæði í útliti og hugmyndafræði. Guardiola sjálfur skildi þó ekki alveg viðurnefnið þegar hann var spurður út í það á æfingaferð City í Bandaríkjunum.
„Diet Pep? Er það út af hárinu? Eða skegginu?“ sagði Spánverjinn hlæjandi.
Guardiola hefur margoft talað af mikilli virðingu um fyrrum aðstoðarmann sinn.
„Hann trúir djúpt á sínar hugmyndir og það er mikilvægasta eiginleikinn hjá þjálfara. Hann mun ná árangri,“ sagði Guardiola um Maresca.
Maresca starfaði fyrst hjá akademíu Manchester City á Covid-tímanum og vakti þar mikla athygli með skipulagi sínu og vinnubrögðum. Undir hans stjórn vann U23 lið City Premier League 2 með yfirburðum og leikmenn á borð við Cole Palmer og Liam Delap hafa síðar hrósað honum mikið.
Eftir stutt stopp hjá Parma sneri Maresca aftur til Manchester City árið 2022 sem aðstoðarmaður Guardiola. Það tímabil vann City hina sögulegu þrennuna, þar á meðal Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn.
Nú telja margir innan félagsins að Maresca sé tilbúinn að taka næsta skref og leiða Manchester City inn í nýtt tímabil eftir Guardiola.