fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 21. maí 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingur á fimmtugsaldri hefur nú verið fluttur með sjúkraflugi til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans. Áverkana hlaut maðurinn í Reykjanesbæ á mánudagsmorgun en þar var hann í miklu ójafnvægi, hellti yfir sig eldfimum vökva og ekki liggur fyrir hvort hann hafi svo lagt eld að sjálfum sér eða hvort eldurinn hafi kviknað eftir að lögregla beitti rafbyssu. Lögmaður mannsins, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hefur harðlega gagnrýnt lögregluna fyrir framgöngu sína enda liggi það í hlutarins eðli að ekki sé rétt að beita rafbyssu þegar einstaklingur er þakinn eldfimum vökva. Vilhjálmur sagði í samtali við Vísi að maðurinn hefði gengist undir aðgerð í Noregi og að staðan væri grafalvarleg.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir að nú sé rafbyssugríman fallin. Hún rifjar það upp í grein hjá Vísi að þegar þáverandi dómsmálaráðherra, Jón Gunnarsson, hafi heimilað lögreglu að bera rafbyssur hafi hann lofað Íslendingum að þannig yrði almenningur öruggari. Fulltrúar lögreglunnar hafi lýst því að það væri skárra að fá í sig rafstraum heldur en kylfuhögg. Skilaboð ráðherra og lögreglu hafi verið þau að rafbyssur væru af hinu góða.

„Þegar fréttir bárust fyrst af því að lögreglan hafði skotið mann í andlegu ójafnvægi sem hellt hafði yfir sig bensínvökva, ekki einu sinni heldur tvisvar með rafbyssu sagði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum okkur að það sé „minna inngrip að nota slíkt vopn [rafbyssu] heldur en til dæmis að grípa til skotvopna.“ Ég spyr mig hvort maðurinn sem liggur nú þungt haldinn á spítala í Noregi með brunasár á um 50% líkamans sé sammála þessari yfirlýsingu lögreglustjórans.“

Sjá einnig: Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“

Þórhildur gagnrýnir eins að lögregla hafi gert vitni að eyða myndbandsupptöku af atvikinu. En það sé þó fleira sem komi til. Lögreglan hafi lengi fengið athugasemdalaust að stjórna því hvernig fjallað er um hana.

„Lögreglan hefur um ókomna tíð fengið nokkurn veginn afskiptalaust að stjórna því hvernig fréttir eru sagðir af henni og hvaða orð eru notuð til þess að lýsa háttsemi hennar. Fjölmiðar eru gjarnir á að apa yfirlýsingar upp eftir lögreglu og forðast að spyrja hana gagnrýninna spurninga um framferði sitt.“

Gott dæmi um þetta sé umræðan um rafbyssurnar þar sem lögregla og ráðherra kröfðust þess að talað yrði um rafvarnarvopn frekar en rafbyssur.

„Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni. Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“

Þórhildur kallar eftir sjálfstæðu eftirliti með störfum lögreglu. Slíkt sé nauðsynlegt í ljósi aukins vopnaburðar lögreglumanna og aukinna eftirlitsheimilda sem lögreglan hefur fengið á undanförnum árum.

„Lýðræði og réttarríki er ekki ókeypis og sofandaháttur gagnvart valdbeitingargræðgi yfirvalda tekur á endanum sinn toll. Hann birtist í brunasárum, líkamsmeiðingum, njósnum um saklaust fólk, barsmíðum á mótmælendum og annars konar valdníðslu.

Og þrátt fyrir þrotlausa baráttu sumra er enn ekki búið að stofna til sjálfstæðs eftirlits með störfum lögreglu þó svo að vopnaburður lögreglu og eftirlitsheimildir hennar hafi verið stórauknar á undanförnum árum.

Vonandi auðnast okkur að breyta því sem allra fyrst. “

Sjá einnig: Lögreglan í Reykjanesbæ skaut með rafbyssu á mann sem hafði hellt bensíni yfir sig – „Hann var allur í eldi og hlaupandi og öskrandi“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 
Fréttir
Í gær

Halla segir tvennt vera sláandi við stýrivaxtahækkunina – „Hún er orðin aðkallandi spurningin“

Halla segir tvennt vera sláandi við stýrivaxtahækkunina – „Hún er orðin aðkallandi spurningin“
Fréttir
Í gær

Andartaki eftir að hún lagði bílnum sínum hófst martröðin – „Ég er að deyja“

Andartaki eftir að hún lagði bílnum sínum hófst martröðin – „Ég er að deyja“