fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
433Sport

Fær dóm eftir ofsaakstur og að valda líkamstjóni

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 21. maí 2026 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamal Musiala, stjarna Bayern München og þýska landsliðsins, hefur misst ökuleyfið sitt eftir alvarlegt umferðaratvik á þýsku hraðbrautinni A8 í fyrra.

Samkvæmt þýskum miðlum á atvikið sér stað 13. apríl 2025 þegar Musiala ók rafmagnsbíl sínum, sem er metinn á um 120 þúsund pund, á miklum hraða í átt að Salzburg. Talið er að hann hafi tekið fram úr öðrum bíl með hættulegum hætti sem leiddi til áreksturs.

Málið fór fyrir dómstóla í München og hefur Musiala nú verið dæmdur fyrir gáleysislegan akstur sem skapaði hættu í umferðinni auk þess að valda líkamstjóni af gáleysi í tveimur tilvikum.

Tveir einstaklingar, 30 ára karlmaður og 26 ára kona sem voru í Volkswagen Golf bifreið, hlutu minniháttar meiðsli í slysinu.

Dómstóllinn gaf út refsiskipun í janúar 2026 og samkvæmt fréttum hefur hún nú tekið gildi. Musiala mun að lágmarki missa ökuleyfið í níu mánuði.

Bayern München hefur ekki enn gefið út opinbera yfirlýsingu um málið en atvikið hefur vakið mikla athygli í Þýskalandi enda er Musiala einn stærsta stjarna landsins og lykilmaður bæði hjá Bayern og þýska landsliðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Besta deild kvenna: Breiðablik áfram með fullt hús stiga eftir ferð norður – Öflugur sigur hjá Þrótti

Besta deild kvenna: Breiðablik áfram með fullt hús stiga eftir ferð norður – Öflugur sigur hjá Þrótti
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Skrifaði í sögubækurnar í gær – Sá yngsti til að verða enskur meistari

Skrifaði í sögubækurnar í gær – Sá yngsti til að verða enskur meistari
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Guardiola segir frá fundi sem hann á fyrir helgina – Þar mun framtíð hans ráðast

Guardiola segir frá fundi sem hann á fyrir helgina – Þar mun framtíð hans ráðast
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Er sögð vera fallegasta kona í heimi – Vekur athygli eftir að hún vann kosninguna

Er sögð vera fallegasta kona í heimi – Vekur athygli eftir að hún vann kosninguna
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Nefna átta leikmenn sem gætu farið frá Arsenal – Mjög stór nöfn þar á meðal

Nefna átta leikmenn sem gætu farið frá Arsenal – Mjög stór nöfn þar á meðal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?