fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Prófaði umdeildan megrunarkúr frá 1977 – „Ég vissi varla hvaða dagur var“

Fókus
Miðvikudaginn 20. maí 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska blaðakonan Sophie Swietochowski hjá The Sun lagðist í athyglisverða tilraun fyrir skemmstu þar sem hún prófaði megrunarkúr sem var fyrst kynntur til leiks í tískublaðinu Vogue árið 1977.

Kúrinn stendur yfir í þrjá daga og samanstendur matseðillinn af heldur einföldum hráefnum: Eggjum, steik, svörtu kaffi og heilli hvítvínsflösku á hverjum degi. Vogue lofaði á sínum tíma rúmlega tveggja kílóa þyngdartapi á þremur dögum.

Sophie ákvað að prófa mataræðið sjálf í þrjá daga fyrir sumarfrí sitt og lýsti hún reynslunni í ítarlegri grein.

Mataræðið á rætur sínar að rekja til Helen Gurley Brown, fyrrverandi ritstjóra Cosmopolitan og höfundar bókarinnar Sex and the Single Girl. Að hennar sögn átti kúrinn að láta fólk finna fyrir auknu sjálfstrausti og lífsgleði – og jafnvel meiri kynþokka.

Fyrsti dagurinn: Vímutilfinning og hungur

Fyrsti morguninn hófst með harðsoðnu eggi, svörtu kaffi og glasi af Chablis-hvítvíni klukkan tíu um morguninn. Sophie segir morgunverðinn hafa verið erfiðan, sérstaklega þar sem hún hafði drukkið kvöldið áður.

Þrátt fyrir ógleði og þynnkueinkenni tók vínið fljótt yfir og kveðst hún hafa eytt morgninum hálfdrukkin heima í sófanum. Í hádegismat borðaði hún tvö harðsoðin egg, drakk svart kaffi og fékk sér svo annað hvítvínsglas.

Hún segir vínið hafa deyft hungurtilfinninguna tímabundið, en orkuleysið og svengdin hafi snúið hratt aftur. Um kvöldið borðaði hún steik með fjölskyldunni, kláraði hvítvínsflöskuna og fann í fyrsta sinn fyrir einhverri seddu.

Annar dagurinn: Eins og ódýrt beljuvín

Á öðrum degi vaknaði Sophie mjög svöng snemma morguns og átti erfitt með að koma víninu niður. Hún segir Chablis-vínið fljótt hafa misst allan sjarma og bragðast eins og ódýrt beljuvín frá unglingsárunum. Mataræðið var það sama og daginn áður; egg, kaffi, steik og hvítvín.

Eftir því sem leið á daginn áttaði hún sig á því að tilgangur vínsins væri líklega einfaldlega sá að gera fólk nógu ölvað til að gleyma hungrinu. Segir hún að um kvöldið hafi hún ekki upplifað nein ölvunaráhrif heldur frekar orkuleysi og þreytu.

Þriðji dagurinn: Höfuðverkur og algjört orkuleysi

Þriðji dagurinn reyndist verstur. Sophie vaknaði með ónot í maga og gat vart hugsað sér að borða annað egg.

Hún eyddi deginum með höfuðverk, svima og orkuleysi í sófanum heima. Eftir hádegi var hún bæði svöng, pirruð og örmagna.

Eina huggunin var að þessi öfgafulla tilraun væri senn á enda. Hún fór snemma að sofa með þá einu hugsun að næsti morgunn myndi loksins færa henni venjulegan mat – og nóg af kolvetnum.

Niðurstaðan: Lítið þyngdartap og mikil vanlíðan

Eftir þrjá daga hafði Sophie misst um rúmlega eitt kíló, eða helming þess sem Vogue lofaði á sínum tíma.

Hún segir mataræðið ekki hafa verið þess virði og lýsir því að hún hafi verið „ringluð, þreytt og varla vitað hvaða vikudagur væri.“ Að hennar mati hefði hún vart getað sinnt venjulegri vinnu í þessu ástandi.

„Að vera hálfdrukkinn allan daginn hljómar fyndið í fyrstu, en verður fljótt bæði leiðinlegt og þreytandi,“ segir hún í grein sinni og bætir við að hún muni ekki prófa Vogue-kúrinn aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur