fbpx
Mánudagur 13.apríl 2026
Fréttir

Óðinn Svan kveður RÚV – „Næsti kafli verður opnaður fljótlega“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. febrúar 2026 15:38

Óðinn Svan Óðinsson. Mynd/Skjáskot RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson hefur sagt skilið við RÚV eftir um sjö ára starf fyrir stofnunina. Þetta kemur fram í færslu Óðins á Facebook.

„Eftir tæp sjö ár hjá RÚV er nú komið að því að loka þeim kafla. Ég verð RÚV ævinlega þakklátur fyrir tækifærin og þau fjölmörgu verkefni sem mér hefur verið treyst fyrir. Ég hef unnið með frábæru fólki, eignast góða vini og hitt fólk um allt land sem hefur treyst mér fyrir sínum sögum. Næsti kafli verður opnaður fljótlega og hann verður pottþétt álíka skemmtilegur og þessi,“ skrifar Óðinn Svan.

Óðinn, sem búsettur er á Akureyri, starfaði drjúgan part tímans sem fréttamaður RÚV á Norðurlandi en færði sig svo meðal annars yfir á íþróttadeild stofnunarinnar auk þess sem hann starfaði sem einn af umsjónarmönnum Kastljóss.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Myndband oddvita Miðflokksins vekur hörð viðbrögð – „Ertu í alvöru að aka í göngugötu og kvarta yfir skort á bílastæðum?“

Myndband oddvita Miðflokksins vekur hörð viðbrögð – „Ertu í alvöru að aka í göngugötu og kvarta yfir skort á bílastæðum?“
Fréttir
Í gær

Þykir of vænt um bæinn sinn til að þegja – „Útsvarsgreiðendur í Kópavogi borguðu fyrir hús sem þeir áttu fyrir“

Þykir of vænt um bæinn sinn til að þegja – „Útsvarsgreiðendur í Kópavogi borguðu fyrir hús sem þeir áttu fyrir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árni Stefán skrifar: MAST gegn MÉR – um lögleysu aðgerða MAST

Árni Stefán skrifar: MAST gegn MÉR – um lögleysu aðgerða MAST
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Faðir á Norðurlandi úrskurðaður í nálgunarbann – Dóttirin tilkynnti um ofbeldi hans til lögreglu

Faðir á Norðurlandi úrskurðaður í nálgunarbann – Dóttirin tilkynnti um ofbeldi hans til lögreglu