fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Fréttir

Manndráp í Kiðjabergi: Gæsluvarðhald tveggja manna framlengt til 10. maí

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 30. apríl 2024 14:17

Hinn látni birti myndband af sumarhúsinu sem hann var að vinna við. (Skjáskot).

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir litáheskir menn sem grunaðir eru um að hafa orðið landa sínum að bana við sumarbústað í Kiðjabergi í Árnessýslu þann 20. apríl síðastliðinn hafa verið úrskurðaðir í framlengt gæsluvarðhald til 10. maí.

RÚV greinir frá.

Upphaflega voru fjórir menn handteknir vegna láts mannsins en tveir voru látnir lausir.

Hinn látni var fæddur árið 1987 og hafði verið hér á landi við störf í byggingarvinnu í þrjá mánuði. Hann á kærustu í Litháen sem fékk upplýsingar um lát hans í gegnum lögreglu þar í landi.

DV ræddi fyrir skömmu við besta vin hins látna, litháeskan mann sem býr og starfar í Noregi. Sá maður er einnig í sambandi við kærustu hins látna í Litháen. Hann hefur eftir henni að hinn látni hafi hringt í hana um hálfníuleytið á laugardagsmorguninn og sagst hafa fallið úr stiga og brotið rifbein. Laust fyrir kl. 14 sama dag kom lögregla á vettvang og þá var maðurinn látinn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fleiri nýleg gjaldþrot Ásgeirs – Mörg hundruð milljónir í súginn

Fleiri nýleg gjaldþrot Ásgeirs – Mörg hundruð milljónir í súginn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhanna Vigdís fær á baukinn eftir viðtal við Höllu Hrund: „Furðulegar spurningar satt að segja“

Jóhanna Vigdís fær á baukinn eftir viðtal við Höllu Hrund: „Furðulegar spurningar satt að segja“