fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Berglind segir að þetta verði að stöðva strax – „Þúsund heimila eru flutt í hverjum mánuði yfir í sérstakan, leynilegan okurverðflokk“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 19. janúar 2022 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, segir að okrað sé á fasteignaeigendum í „nauðungarflutningum“ til orkufyrirtækja. Þetta leiði til þess að fasteignaeigendur sem ekki velja sér orkufyrirtæki sjálfir eru að greiða hæsta verðið á markaðinum þrátt fyrir að ríkið haldi því fram að þeir velji það lægsta. Hún skrifar um málið í pistli sem birtist hjá Vísi.

„Hugsum okkur ungt par sem er að byrja að búa. Það flytur inn fullt tilhlökkunar að takast á við þau verkefni sem fylgja sjálfstæðu lífi. Um það leyti berst SMS: „Velja þarf raforkusala innan 7 daga.“ Síðan fylgir slóð á opinberan vef þar sem raforkumarkaðurinn er skýrður í nokkru máli. Eftir að hafa verið send áfram á eftir nokkrum vefsíðum enda þau á síðu þar sem eru tenglar yfir á vefi rafmagnssalanna þar sem hægt er skrá sig í viðskipti.“

Ríkið velur fyrir þau

Berglind heldur áfram með ofangreinda dæmisögu. Unga fólkið hafi gleymt sér í framkvæmdum og gleymt því að velja sér orkufyrirtæki. Því hafi ríkið flutt viðskipti þeirra til eins sölufyrirtækis og unga parið fékk ekki að vita hvaða fyrirtæki það var fyrr en reikningur barst í heimabanka.

„Hvernig skyldi ríkið nú velja fyrirtækið sem það færir viðskiptavini nauðungarflutningum til? Jú, það er farið í listaverð rafmagnsalanna og sá sem er með lægsta meðalverðið yfir tiltekið tímabil fær sjálfkrafa viðskipti þeirra sem ekki velja sér rafmagnssala sjálf.“

75 prósent hærra verð en gefið var upp

Berglind segir að af ofangreindu mætti álykta að unga parið fengi því lægsta verðið á markaðnum. En raunin sé þó önnur.

Ónei, þannig er því ekki varið. Þau borga hæsta verðið á markaðnum, langhæsta verðið. Fyrirtækið sem sendir opinberu starfsmönnunum lægsta listaverðið er nefnilega búið að búa til sérstakan okurflokk fyrir unga parið og önnur þau sem ekki velja sér rafmagnssala sjálf. Í staðinn fyrir að borga listaverðið sem opinberu starfsmennirnir eru með í höndunum borga söguhetjur okkar verð sem er næstum tvöfalt hærra, 75% hærra en verðið sem var gefið upp til að verða þessara nauðungarflutninga raforkukaupenda aðnjótandi. Í stað þess að borga listaverðið 6,44 kr eru þau að borga 11,16 kr. á kílóvattstund.“

Þvinguð í viðskipti af ríkinu

Berglind segir þetta ekki bara óviðunandi heldur algjörlega ótækt að ríkið taki að sér að flytja viðskipti mörg þúsund manns án vitneskju þess yfir í hæsta verðið á markaðnum.

„Og svona gengur þetta, mánuð eftir mánuð eftir mánuð, að ung pör á öllum aldri sem eru að byrja búskap, eða bara að flytja, eru þvinguð af ríkinu í viðskipti við fyrirtæki sem auglýsir lægsta verðið en rukkar svo hæsta verðið – langhæsta verðið hjá N1 rafmagn.“

Berglind segir að Orka náttúrunnar hafi bent Orkustofnun og orkumálaráðuneytinu á þetta, að „stórgallaðar reglur er misnotaðar ti að snuða fólk.“ Engu að síður hafi ekkert breyst.

„Rafmagnskaup um þúsund heimila eru flutt í hverjum mánuði yfir í sérstakan, leynilegan okurverðflokk sem hvergi er finnanlegur opinberlega.“

Verður að stöðva strax

Berglind vísar aftur til ímyndaða unga parsins og segir það heppið að ríkið sjái ekki um að velja fleiri útgjöld fyrir þau.

„Hugsum okkur sérstakan okurbrunatryggingaflokk fyrir húsnæðið, sérstakan okurverðflokk fyrir fjarskiptin á heimilinu þar sem unga parið er rukkað um 75% hærra verð en það hélt í upphafi, bara af því að ríkið tók að sér að velja tryggingafélag og fjarskiptafélag fyrir það. Ef fólk getur valið sér tryggingafélag sjálft og fjarskiptafélag sjálft, þá er því treystandi að velja sér raforkusala.

Ríkisvarða okrið sem nú viðgengst er ekki í boði. Það verður að stöðva. Strax.“

Fyrir þá lesendur sem vilja kynna sér verð á raforku hér á landi þá er hægt að finna upplýsingar inn á vefsíðunni aurbjorg.is þar sem er hægt að fá óháðan samanburð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum